Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 13
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
53
Kjaramál
í stefnu BSRB í síðustu kjarasamningum var lagt til grundvallar
jafnlaunastefna. Nokkur árangur náðist fram í því máli, þó alltaf
þurfi þetur að gera. Launamálanefnd Ljósmæðrafélags íslands
undirritaði sérkjarasamning 6. nóv. 1980 fyrir ljósmæður sem
vinna hjá ríkinu og stofnunum þess, svo og skipaðra ljósmæðra í
umdæmum.
Þar var þröngur stakkur skorinn um nokkrar kjarabætur eða
tilfærslur með hækkun launaflokka, þrátt fyrir kröfur nefndar-
innar í kröfugerð. Var því nauðugur einn sá kostur að ganga að
tilboði ríkisins, að öðrum kosti fari málið fyrir kjaradóm, sem
jafnan þykir neyðarúrræði og gefur yfirleitt ekki meira í aðra
hönd. Er það ósk okkar og von að betri árangur náist í næstu
samningalotu, sem verður i byrjun næsta árs.
Á stjórnarfundi 29. jan. 1981 tilnefndi stjórnin nýja kjaramála-
nefnd. í henni eru:
Gróa M. Jónsdóttir
Ingibjörg Pálmadóttir
Torfhildur Þorleifsdóttir
Varamenn:
Svanborg Egi/sdóttir
Bergljót Þórðardóttir
Á árinu sátu fulltrúar félagsins fundi og ráðstefnur:
Stjórnarfund ljósmæðra á Norðurlöndum
Magnea Guðnadóttir yfirljósmóðir, Vennesborg, Svíþjóð.
Heilbrigðisþing 16.—17. okt. s.l.
Svanhvít Magnúsdóttir.
Fræðslufund Bandalags kvenna um málefni fatlaðra
Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
Formannaráðstefnu BSRB 12.—14. nóv. 1980
Svanhvít Magnúsdóttir.