Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 38
78
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
ast að hluta af meðgöngusjúkdómum, sem valda vefrænum breyt-
ingum á fylgjunni. Það skerðir varabirgðir fóstursins svo það á
ekkert til að grípa til, verði það fyrir auknu álagi.
Slík fóstur hafa því litla getu til að takast á við aukið álag, þar
sem þeim veitir ekkert af allri þeirri næringu og blóðflæði, sem
þau þegar geta fengið til að halda sér á lífi og undir flestum kring-
umstæðum lifa þau við skort, sem aftur skilar sér með hægfara
vexti, minna barni og jafnvel hættu á fósturdauða.
Slíkum börnum er enginn greiði gerður með því að láta þau
ganga út fulla meðgöngu og því mikilvægt ef hægt væri að þekkja
þau úr og flýta fæðingu þeirra.
Álagspróf, — hæfnispróf á fylgju
Þau byggjast öll á því að sé álag sett á móðurfóstur eininguna
(þ.e. á blóðstreymi um leg og fylgju), megi merkja þær breyting-
ar, sem álagið veldur í breyttum hjartslætti barnsins. Þessi eru
helst:
1. Láta móður anda að sér súrefnissnauðu lofti, fóstrið fær
þá ónógt súrefni og fram kemur tachycardia hjá því, og
fall sé fylgja Iéleg.
2. Láta móður reyna á sig. Áreynsla eykur blóðflæði til út-
lima og beinir þvi frá leginu. Við það minnkar þrýstingur
á gegnumflæði um fylgju.
3. Auka samdrætti legsins (activitet). Það gefur minna
blóðflæði um fylgju vegna samdrátta á æðarnar í leginu.
Þetta nálgast það að líkja eftir fæðingu, sem á vissan
hátt er álagspróf á fóstrið.
Af þessum prófum hefur reynst best að framkalla samdrætti í
leginu. Notað er Oxytocin til að framkalla þá og kallast slíkt próf
OCT próf (Oxytocin challenge test), eða Oxytocin álagspróf. í
stað Oxytocins er notað Syntocinon, tilbúið lyf með sömu verkun.
Legsamdrættir eru framkallaðir hjá konunni með Syntocinon-
dreypi í æð og er hún tengd monitor (CTG) á meðan. Fylgst er
með breytingum á hjartslætti fóstursins samfara auknum sam-
drætti í legi. Oxytocinið er aukið þangað til að minnsta kosti þrír