Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Page 7

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Page 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 47 Ganga þarf úr skugga um að glæran sé tær, og að ekki sé ský á augasteini. Við augnspeglun er erfitt að greina einstaka hluta augnbotnsins og láta flestir sér nægja að ganga úr skugga um að ljósvegir (glæra, augnvökvi, augasteinn og glerhlaup) séu tærir og að rautt endurskin frá æðahimnunni sjáist. Sé svo, er sennilegt eða nær öruggt að barnið er með heilbrigð augu og eðlilega sjón. Sérstaka gát skal hafa, þegar barn fæðist fyrir tímann. Fyrir- burðum er hætt við súrefniseitrun, þurfi að hafa þau í súrefnis- kassa. Sé um ofmettun á súrefni að ræða, getur myndast bandvef- ur í glerhlaupinu (retrolental fibroplasia) og orsakað blindu. Þetta var algeng blinduorsök í Bandaríkjunum á árabilinu 1945—1955 meðan orsakasambandið milli þessara þátta var ekki þekkt. Engir fyrirburðir, sem fæðst hafa hér á landi hafa blindast af súrefnis- eitrun. Tvö blind börn eru þó hér á landi af völdum súrefniseitr- unar. Eru það tvíburastúlkur (f. 1977). Þær fæddust á 29. viku meðgöngutíma og voru hafðar i súrefniskassa. Er önnur með rat- sjón en hin nær alveg blind. Þær fæddust í Danmörku. Fyrirburðum er hættara við skýmyndun í augasteini og ber að hafa það í huga við nýburaskoðun. Ef móðir fær rauða hunda á fyrstu þremur manuðum með- göngutíma, getur barnið fæðst með ský á augasteini, öðrum eða báðum. Eftir rauðahundafaraldurinn 1954 fæddust nokkur börn með ský á augasteini og höfðu þau öll hjartagalla. Aftur á móti er mér ekki kunnugt um að barn hafi fæðst blint af þeim sökum í faraldrinum 1964, þegar mörg þessara barna fæddust heyrnarlaus eða með mikla skerðingu á heyrn. Flér á landi eru 6 börn, sem fæðst hafa án augna eða með það van- sköpuð augu að þau eru blind. Silfurnitrat augndropar hafa ver- ið bornir í augu nýfæddra hér á landi síðan 1896. Þórunn Á. Björnsdóttir, ljósmóðir á heiðurinn af því að hafa byrjað á þessari fyrirbyggjandi lækningu við lek- andabólgu í augum. Þórunn Á. Björnsdóttir.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.