Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Page 16
56
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
7. gr.
í reglugerð skulu vera ákvæði um fjölda nemenda, námsefni og
kennslutilhögun, próf og vitnisburði, réttindi og skyldur nemenda
og menntun kennara og skólastjóra.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög um Ljós-
mæðraskóla íslands nr. 35 frá 20. maí 1964.
9. gr.
Ráðherra skal heimilt að setja lækni (sérfræðing í fæðingarhjálp)
til þess að gegna störfum skólastjóra fyrst um sinn.
Nokkrar umræður urðu um menntunarmál ljósmæðra og
starfsréttindi.
Til máls tóku m.a. Halla Halldórsdóttir og Kristín Tómasdótt-
ir, sem báðar fögnuðu því að nú hillti undir bætta menntun og
betri launakjör ljósmæðra með þeim lagadrögum sem nú voru til
kynningar á fundinum og vonir standa til að verði lögð fyrir
næsta Alþingi.
Það kom fram í málflutningi Höllu og annarra ljósmæðra, að
talsvert er um það að aðrar starfsstéttir í heilbrigðisþjónustu gegni
störfum ljósmæðra. Taldi Halla að síðustu forvöð væru að ljós-
mæður spyrntu við fótum, ella yrði ljósmæðrum ýtt til hliðar úr
þeim störfum sem nú tilheyra þeim.
Bar Halla fram eftirfarandi tillögu:
„Aðalfundur Ljósmæðrafélags íslands samþykkir að fela stjórn
LMFÍ að kanna störf ljósmæðra á heilsugæslustöðum og mótmæal
því, að aðrir starfshópar annist þeirra störf.”
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Hildur Kristjánsdóttir form. fræðslunefndar tók til máls og
sagði frá störfum fræðslunefndar. Aðaláhugamál þeirra er að
koma á námskeiði fyrir ljósmæður, þar sem námsefni yrði ,,For-
eldrafræðsla”.