Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Qupperneq 53
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
93
inni og s.l. ár hefur deildin verið staðsett á öllum hæðum kvenna-
deildarinnar, en 19. mars 1981 flutti deildin aftur á 3. hæð og er
rúmafjöldinn nú 22, en þar af er ein stofa sérstaklega útbúin með
aðstöðu til fæðinga ,,acutstofa”.
Þegar deildin er ekki fullnýtt af konum með meðgöngusjúk-
dóma, eru teknar inn konur til aðgerða vegna kvensjúkdóma og
frá áramótum til 15. maí s.l. var innlagningafjöldi orðin 420, en
þar af 287 með meðgönguvandamál, og eru helstu ástæður fyrir
innlögnum, hypertensio, pre-eclampsiur, partus prematurus
imminens, dysmatur. Flestar gemelli konur frá 32. viku til 36.
viku diabetis mellitus, hypermisis, abortus iminens, foeutus mort-
us, svo eitthvað sé nefnt.
Við deildina starfa 6 fastráðnar ljósmæður og 5 sjúkraliðar og
að auki eru ljósmæðra-, hjúkrunar- og sjúkraliðanemar. Deildar-
stjóri er Matthea G. Ólafsdóttir og deildarlæknar eru nú Jón Þ.
Hallgrímsson og Ágúst V. Jónsson.
Allar myndirnar sem fylgja greininni tók Jóhannes Long.
Acutstofan.