Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 3
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 107
MINNING:
Guðmundur
Jóhannesson
læknir
Sú dapurlega fregn barst okkur á fæðingardeild Landspítalans
þann 28. nóvember síðastliðinn að daginn áður hefði Guðmundur
Jóhannesson kvensjúkdómalæknir stórslasast í bílslysi á Hellis-
heiði, er hann var á leið til Selfoss i einni af mörgum reglulegum
ferðum sínum þangað í starfserindum.
Fyrstu viðbrögð okkar voru að óska fregnina ranga, hugurinn
átti erfitt með að aðlagast því tómi, sem fjarvera hans, stutt eða
löng, myndi hafa á allt okkar starf og umhverfi. Því miður reynd-
ist fregnin rétt. Guðmundur lá á gjörgæsludeild Borgarspítalans í
rúmar tvær vikur og allan tímann fylgdumst við með baráttu hans
og læknanna fyrir lifi hans og óskuðum að leiðin lægi bataveginn.
Við sögðum okkar á milli að hann hlyti að eiga eftir að koma
aftur til okkar á fæðingardeildina. En sunnudaginn 13. desember
^om fréttin, sem við síst vildum heyra, að Guðmundur væri
dáinn. Á slíkum stundum gerast minningarnar og þakkarhugur
áleitin við þá er kynni höfðu af þessum merka manni og jafnvel
svo að stirður penni fer af stað til að festa á blað fáeinar línur um
hann í nafni þakklætis og virðingar.
Víst er að æviferill Guðmundar verður af öðrum rakinn og
verða því minningarnar ríkjandi í línum þessum.