Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Page 27
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
131
stúdentspróf með góðar einkunnir, 20, sem ekki hafa endilega
góðar einkunnir eða próf, en sem hafa reynst góður starfskraftur
á vinnumarkaði, og þá ekki hvað síst inni á sjúkrastofnununum. 5
hjúkrunarkonur eru teknar inn árlega, einnig útlendar ljós-
mæður, sem taka skólann á 2 árum.
Finnska ljósmæðrafélagið á erfitt uppdráttar frá því árið 1960,
er náminu var breytt í núverandi horf. Sama er að segja um
norska ljósmæðrafélagið, sem telur aðeins 450 meðlimi.
Norskar Ijósmæður hafa langt nám að baki. Fyrst hjúkrunar-
skólann, síðan starfandi eitt ár sem hjúkrunarfræðingar, áður en
þær komast inn í Ijósmæðraskólann, sem tekur eitt ár. Til þess að
öðlast full réttindi, verða þær að starfa við viðurkenndan
fæðingaspítala i eitt ár, sem ljósmæður. Eigi að síður er nú svo
komið, að þær hafa misst út úr höndum sér nær alla þjónustu við
mæður og börn þeirra til annarra heilbrigðisstétta, eftir stendur
aðeins fæðingin sjálf. Eðlilega spyrja þær; til hvers er nú öll
okkar barátta, götuna fram eftir veg, ef hún skilar þessum lélegu
heimtum?
Það sem ég hef tekið til umfjöllunar hér að framan, er það, sem
ég hélt að væri mest áhugavert fyrir lesendur Ljósmæðrablaðsins,
og um leið það sem ýtarlegast var rætt á nefndum fundi. Eins og
áður segir, var þetta langur og strangur fundur. Ógerlegt er því að
segja frá honum ýtarlega í stuttri blaðagrein. Ályktanir og
samþykktir flestar, sem gerðar voru á fundinum, er nú að finna í
skjalasafni Ljósmæðrafélagsins, og að sjálfsögðu er öllum við-
komandi heimill aðgangur þar að.
Eitt af mörgu, sem mikið var rætt, var rannsóknarstarf og nám
ljósmæðra, sem mikið hefur aukist í seinni tíð, og gefur svokallað
doktarat að námi loknu.
Inn í þá umræðu kom rannsóknarstarf frú Lizbeth Brudal, en
hún kom hingað til Islands í vor, og spurningunni var varpað
fram: Hvers vegna var þetta verk ekki unnið af ljósmóður?
Einnig kom til umræðu fundur, sem haldinn var í Finnlandi sl.
vor, þar sem rætt var um störf frú E. Brudal. Norræna ljós-
mæðrasambandinu var ekki boðið á fundinn, og trúlega engum
ljósmæðrum. Til dæmis má nefna, að frá íslandi voru boðnir full-
trúar frá Jafnréttisráði, Kvenréttindafélagi íslands, Kvenfélaga-
sambandi íslands og Rauðsokkahreyfingunni. Fundur ljós-