Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Qupperneq 33

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Qupperneq 33
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 137 kosinn Jóhanna María Þórðardóttir, en auk hennar eru í stjórn Svandís Jónsd. ritari og Sigríður Jónsd. gjaldkeri. Starfsskýrsla Norðurlandsdeildar L.M.F.Í. Maí 1980 — maí 1981 Haldnir voru þrír fundir á árinu. Aðalfundur var haldinn að Kálfsskinni á Árskógsströnd 1. júlí. Þar fóru fram venjuleg aðalfundarstörf. Samþykkt var að hafa ekki basar og innheimta ekki kaffigjald á hverjum fundi framvegis, heldur skyldi nú hver félagskona greiða kr. 50, sem innheimtist einu sinni á ári. Rætt var um að reyna að koma á fræðslufundum. Á haustfundi var svo Bjarni Rafnar læknir fenginn til að flytja erindi. Flutti hann fróðlegt erindi um gildi góðrar fæðingarhjálp- ar og fleira athyglisvert. Mættar voru um 20 ljósmæður á þeim fundi og er það nokkurnveginn sú tala, sem virk er innan deildarinnar. Þá lagði Margrét formaður til, að félagið léti eitthvað til sín heyra í sambandi við foreldrafræðslu, og var samþykkt að semja °g senda til heilsuverndarstöðvar Akureyrar eftirfarandi ályktun. Akureyri 20/11 1980. Til stjórnar Heilsuverndarstöðvar Akureyrar Á haustfundi Norðurlandsdeildar L.M.F.Í. sem haldinn var á Akureyri þ. 5. nóvember sl. var samþykkt að senda stjórn Heilsu- verndarstöðvar Akureyrar svohljóðandi ályktun: Fundurinn beinir þeim tilmælum til stjórnar Heilsuverndar- stöðvarinnar, að komið verði á foreldrafræðslu í námskeiðsformi á Akureyri svo fljótt sem kostur er. Slík námskeið hafa verið haldin i Reykjavík um árabil, og nú hin síðari ár bæði i Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og í Fæðingar- deild Landspítalans. Æskilegt er að hafa þessi námskeið til viðmiðunar, en mætti e-Lv. komast af með færri tíma í hvert námskeið a.m.k. til að byrja með. Fundurinn telur að meir en tímabært sé að koma slíkum námskeiðum á, þ.e. fræðslu fyrir verðandi foreldra, ásamt

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.