Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Side 19
ALHEIMSÞING LJÓSMÆÐRA í KOBE, FERÐIR
Dagsferðir
OP-l KYOTO, heildagsferð.
Þriðjudaginn 9. október og miðvikudaginn 10. október klukkan 08.30—18.00.
Verð: 12.500 yen (hádegisverður innifalinn). Tveggja stunda akstur til Kyoto eftir Meis-
hin hraðbrautinni. Borgin skoðuð, m.a. Nijo-kastali, Gold Pavilion og hið rauðlita Heian
Shrine.
OP-2 NARA, heildagsferð.
Þriðjudaginn 9. október og miðvikudaginn 10. október klukkan 08.30—18.30.
Verð: 11.500 yean (hádegisverður innifalinn). Tveggja stunda akstur til Nara eftir Hans-
hin og Nishi-Meihan hraðbrautunum. Borgin skoðuð, m.a. Horyuji hofið, Todaiji hofið
og dýragarðurinn.
OP-3 HIMEJI, heildagsferð.
Mánudaginn 8. október klukkan 09.00—16.30.
Verð: 10.500 yen (hádegisverður innifalinn). Hálfrar annarar stundar akstur til Himeji
til að skoða ,,shirasagijo“ eða Bjarthegrakastalann. Eftir hádegi verður sojasósuverk-
smiðja Kikkomans Takasago heimsótt.
OP-4 KOBE, heildagsferð.
Mánudaginn 8. október og fimmtudaginn 11. október klukkan 09.00—15.00.
Verð: 12.500 yean (hádegisverður innifalinn). Borgin Kobe skoðuð. Bátsferð frá Kobe
Naka-totteibryggju. Farið með strengjakláf upp í Rokko-fjöllin. Gömlu Sake-brugghúsin
í Nada héraðinu skoðuð.
OP-5 Kvöldferð upp í ROKKO-fjöll.
Mánudaginn 8. október klukkan 17.30—21.00.
Verð: 12.000 yen (kvöldverður innifalinn). Ekið upp í Rokko-fjöll til að njóta útsýnis yfir
borgina og höfnina.
OP-6 Iðnaðarkynningarferð.
Fimmtudaginn 11. október klukkan 08.30—16.00.
Verð: 10.500 yen (hádegisverður innifalinn). Iðnfyrirtæki í og við Kobe skoðuð, m.a.
háskólahverfið í Kobe, Seishin iðngarðarnir, Esaki Glico fataverksmiðjurnar, sýningar-
salur þeirra „Glicopia Kobe“ og gúmmíverksmiðjan Hotei.
Ferðir eftir þingið
PT-l TOBA, HAKONE, TOKYO.
Fjögurra daga ferð 12. —15. október.
Verð: 82.500 yen/mann í tvíbýli. 99.500 yen/mann í einbýli.
Föstudagur: Ekið með langferðabíl til Osaka. Þaðan er farið með Kintetsu-lestinni til
Toba við innganginn að Ise-Shima þjóðgarinum.
Laugardagur: Skoðunarferð í Toba, perlueyjan Mikimoto, sigling um Toba-flóa,
1 7
t-JÓSMÆÐRABLAÐIÐ