Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Síða 39
barnshafandi konur að taka aðeins þau
lyf sem fengin eru samkvæmt lyfseðli
og að láta lækni alltaf vita um þungun
ef lyfjameðferð er nauðsynleg á með-
göngutíma.
Onnur skaðleg efni
Kvikasilfursmengun í sjó við strend-
ur Japan olli því að barnshafandi kon-
ur, sem borðuðu mengaðan fisk,
eignuðust börn með skemmdir á mið-
taugakerfinu. Grunur er á að blý, sel-
enium, skordýraeitur, rotvarnarefni og
ýmis leysiefni notuð í iðnaði orsaki einn-
>g fósturgalla.3
Reykingar á meðgöngu
Rannsóknir hafa sýnt að reykingar
mæðra um meðgöngutímann geta haft
skaðvænleg áhrif á fóstrið. Börn
meeðra sem reykja eru að meðaltali
um 200 g léttari en börn mæðra sem
ekki reykja. Vitað er að fylgni er á milli
'ágrar fæðingarþyngdar og nýbura-
dauða, þ.e. andvana fæddra barna og
barna sem deyja á fyrstu 28 dögunum.
Einnig virðist vera aukning á fósturlát-
um og fylgjulosi hjá mæðrum sem
reykja. Sumar rannsóknir hafa bent til
að dregið geti úr líkamsvexti og andleg-
um þroska barna fram eftir aldri vegna
rnikilla reykinga mæðra á meðgöngu-
tíma.
Sýkingar
Sýkingar eru ein af mörgum orsök-
um fyrir fósturlátum og andvana fæð-
'ngum. Fóstrið er mikið viðkvæmara
fyrir sýkingu en fullorðinn einstakling-
ur. Sýking verður oftast eftir blóðbraut
til fylgju og þaðan til fóstursins. Ef kona
hefur orðið fyrir endurteknum fósturlát-
um af óþekktum orsökum, er gerð hjá
henni blóðrannsókn (TORCH-próf).
Rannsakað er hvort konan sé mögu-
lega með sýkil sem geti valdið fóstur-
láti. T í TORCH stendur fyrir Toxo-
plasmosis, O (other) fyrir Syphilis og
Hepatitis, R (Rubella) fyrir rauðu-
hundaveiru, C fyrir Cytomegaloveiru
og H fyrir Herpesveiru.
Rauðuhundaveiran getur valdið
ýmsum alvarlegum fósturgöllum. Þar
ber helst að nefna eftirfarandi: heyrnar-
leysi vegna skemmda á hljóðfæri eyr-
ans, blinda vegna katarakta og óeðli-
lega lítil augu, hjartagallar, ductus art-
eriosus lokast ekki og hjartalokur eru
gallaðar. Gallar geta líka komið fram á
glerjungi tanna, vaxtarseinkun fósturs-
ins og óeðlilegur þroski heilans.23
Mismunandi er hvaða gallar koma
fram eftir tíma sýkingar.
Cytomegaloveiran er af herpes-
flokknum. Hún veldur alvarlegum fóstur-
skemmdum og sjúkdómi í ungbörnum.
Sennilega er þetta langalgengasta
orsök meðfæddra sýkinga og algeng-
asta veiran sem veldur andlegum van-
þroska barna. Rannsóknir hafa sýnt að
5—15% barna sem sýkjast á með-
göngu hafa skaddað miðtaugakerfi.
Smitist kona á meðgöngutíma, sýkist
fóstrið alltaf. Hætta á fósturgöllum er
mest á fyrstu sex mánuðum meðgöng-
unnar. Sýking mjög snemma á með-
göngu veldur sennilega svo miklum
skaða að fósturlát verður. Konur sem
ljósmæðrablaðið
_ 37