Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.04.2002, Blaðsíða 3

Ljósmæðrablaðið - 15.04.2002, Blaðsíða 3
Ritstjóraspjall Af hverju lærum við ? Erum við eingöngu mótuð af því sem við lesum, því sem við sjáum í framkvæmd eða því sem aðrir segja okkur ? Við sjáum margt í starfi okkar sem við dáumst að og líka ýmsa siði sem við vildum ekki taka upp sjálfar. Þannig lærum við af fyrirmyndum okkar bæði á þanna hátt að okkur þykir sjáfsagt að taka upp góð vinnubrögð og forðast hin verri. Þá verðum við sjálfar að vera nægilega sjálfsgagnrýnar til að spyrja okkur þeirrar spurningar; - Hvernig fyrirmyndir viljum við vera ? Erum við tilbúnar að taka gagnrýni á jákvæðan hátt, jafnvel þótt hún sé ekki sett fram á jákvæðan hátt ? Hver er okkar helsta fýrirmynd ? Reynslunni söfnum við í sarpinn af kynnum okkar við aðrar ljósmæður, lækna, ýmsa heilbrigðisstarfsmenn og ekki hvað sýst þær fjölskyldur sem við höfum afskipi af í starfi okkar. Við kynnumst mismunandi viðhorfum til þeirra þátta sem tilheyra okkar sérsviði bæði hjá fagfólki sem hefur þekkingu á sama sviði og einnig hjá skjólstæðingum okkar sem í dag hafa mörg tækifæri til að afla sér þekkingar um meðgöngu, fæðingu og aðra þætti sem varða fjöskyldur í vexti. Með tilkomu Internetsins er aðgangur fólks að upplýsingum nánast ótakmarkaður en gæði upplýsingana er auðvitað afar misjöfn. Þar kemur til kasta okkar að hafa aflað okkur nægilega haldgóðrar þekkingar í formi sannreyndra vísinda og reynslu til að geta miðlað áfram og útrýmt misskilningi og hindurvitnum. Nú á tímum fjölþjóðlegs umhverfis verðum við sífellt meðvitaðri um mismunandi viðhorf þjóða til þess sem snýr að konum í meðgöngu og fæðingu. Sá siður að leggja barn umsvifalaust í fang móður þykir sjálfsagður hjá íslenskum konum en konur af öðrum uppruna vilja e.t.v. alls ekki fá barnið í fangið fyrr en það er komið í föt. í nýlegri ritstjórnargrein skrifar Jan Tritten um tengslamyndun sem ekki má trufla og talar um fæðingarumhverfið sem heilagan reit sem ekkert utanaðkomandi má trufla fyrr en foreldrarnir eru tilbúnir. Þetta á sjálfsagt allsstaðar við, - en getur verið að tengsla- myndun byrji á mismunandi stigi eftir menningarsvæðum ? Og getur verið að hún byrji ekki fyrr en að mörgum dögum liðnum t.a.m. þar sem móðirin fær margra daga hvíld og aðrar konur sjá um að brjóstfæða barnið? Efnisyflrlit Fréttir frá LMFÍ og fleiri fréttir Ritstjóraspjall Ávarp formanns LMFI Á vit ævintýra í Hong Kong Saga fósturgreiningar á íslandi Skimun fyrir fósturgöllum Líkindamat eftir hnakkaþykktarmælingu Ómskoðun við 19 vikna meðgöngu Sykursýki á meðgöngu Brjóstagjöf eftir aðgerðir á brjóstum Kveðjuorð 2 Ólafía M. Guðmundsdóttir ljósmóðir 3 Ástþóra Kristinsdóttir ljósmóðir 4 Hulda Þórey Garðarsdóttir ljósmóðir 5 María Hreinsdóttir ljósmóðir 9 Hildur Harðardóttir læknir 12 Kristín Rut Haraldsdóttir ljósmóðir 19 Hildur Nilsen ljósmóðir 21 Hildur Harðardóttir læknir 22 Katrín Edda Magnúsdóttir ljósmóðir 34 35 Ljósmæðrablaðið gefið út af Ljósmæðrafélagi Islands Hamraborg 1 200 Kópavogi Sími: 564 6099 fax 564 6098 Netfang: lmfi@prim.is Heimasíða: www.ljosmaedrafelag.is Ritstjóri Ólafía M. Guðmundsdóttir ljósmóðir Sími: 564 4254/8614254 Netfang: olafinnur@centrum.is Ritncfnd Jenný Inga Eiðsdóttir Sími: 561 0336 Ingibjörg Hreiðarsdóttir Sími: 567 0841 Halla Hersteinsdóttir Sími: 695 8785 Katrín Edda Magnúsdóttir Sími: 561 1636 Myndir Jón Svavarsson Ólafía M. Guðmundsdóttir og fleiri. Auglýsingar Ólafía M. Guðmundsdóttir Uppsetning er í höndum ritstjóra. Prentun og umbrot Skemmuprent. Upplag 500 eintök. Ljósmæðrablaðið er opinbert tímarit Ljósmæðrafélags Islands og er öllum ljósmæðrum frjálst að senda efni í blaðið. Greinar sem birtast í blaðinu eru alfarið á ábyrgð greinahöfunda og endurspeglar ekki endileg viðhorf ritstjóra, ritnefndar eða Ljósmæðrafélagsins. Ritnefnd áskilur sér þó rétt til að endursenda greinar til lagfæringar ef málfari eða frágangi er ábótavant og hafna alfarið birtingu greina sem eru illa unnar eða málefnum ljósmæðra óviðkomandi. Skilafrestur í aprílblað er 15. febrúar og fyrir októberblað 15. ágúst og skulu greinahöfundar skila efni annaðhvort á disklingi eða senda það á netfang ritstjóra - olaí'innur@ceiUrum.is Forsíðumyndin er af Huldu Þóreyju Garðarsdóttur ljósmóður í Hong Kong Ljósmæðrablaðið o apríl 2002 J

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.