Ljósmæðrablaðið - 15.04.2002, Side 5
Á vit ævintýra
í Hong Kong
Hulda Þórey Garöarsdóttir Ijósmóöir
Kæru ljósmæður!
Það er gaman að fá tækifæri til að segja ykkur
frá því sem ég er að gera hérna í Hong Kong
sem ljósmóðir. Nú hef ég verið hérna í 6 mánuði
og ýmislegt brallað á þeim tíma. I upphafi var
ætlunin ekki að fara að vinna svo fljótt, enda
vissi ég lítið um hvernig skráningarmálum og
atvinnuleyfi væri háttað. í ljós kom fljótlega að
hér þarf að ganga í gegnum langt ferli og á
endanum að taka lokapróf ljósmæðranema héma,
sem er bóklegt og verklegt, áður en skráning sem
ljósmóðir fæst.
Fljótt eftir að ég kom komst ég í samband við
ljósmæðraþjónustu hérna sem býður upp á
heimaþjónustu eftir fæðingu, foreldrafræðslu,
ungbarnavernd og fleira. Eg byrjaði að vinna
þarna í hlutastarfi og var aðallega að sinna
heimaþjónustunni, á mjög sambærilegan hátt og
við gerum heima á íslandi. Þettavarskemmtilegt
og heiUandi starf, því ég fékk á sama tíma tækifæri
til þess að hitta mikið af fólki alls staðar að úr
heiminum og þannig víkkaði
sjóndeildarhringurinn mikið. Þegar eigandi
fyrirtækisins ákvað að fara á eftirlaun og selja
reksturinn varð svo úr að við hjónin ákváðum
að kaupa, og síðan þá hef ég verið í mikilli vinnu,
skemmtilegri og mjög svo gefandi.
Fæðingaþjónusta á ríkisspítölunum
Þjónusta sem tengist bameignaferlinu hér í Hong
Kong er annars vegar á vegum ríkisins og hins
vegar einkarekin. A ríkisspítölunum er víða ágæt
þjónusta; fæðinga- og sængurkvennadeildirnar
ekki ósvipaðar þeim sem við eigum að venjast að
heiman, en talsvert önnur menning sem gildir þar
ogstarfsfólkiðnánastalltKínverjar. Enskaersums
staðar töluð en oft em erfiðleikar í tengslum við
tungumálið.
I meðgöngueftirlitinu er mjög mikið að gera og
algengt er að bíða í tvo kfukkutíma eftir viðtali og
fá síðan 5 mínútna viðtal. Ljósmæður sjá um
mæður á meðgöngu og í fæðingu, en læknar em
viðstaddir og mjög oft nokkrir læknanemar.
Mæðravemdin er konum að kostnaðarlausu. A
ríkisspítölunum em keisaraskurðir mjög algengir,
eða gerðir í 50 prósent tilfella, og valkeisarar em
stórt hlutfall af því. Astæðan er fýrst og ffemst
hræðsla kvenna og lækna við stór böm, en það
teljast þau vera sem áætluð em meira en 3500 gr.
Onnur stór ástæða er hjátrú Kínveija, en í þeirra
menningu skiptir mjög miklu máli að fæða böm
á dögum sem boða jæim lukku í lífinu og velja
keisaradag út ffá því, jafnvel ]x3 meðgangan sé
stundum ekki nema 37 vikur.
I upphafi var ætlunin ekki að
fara að vinna svo fljótt, enda
vissi ég lítið um hvernig
skráningarmálum og
atvinnuleyfí væri háttað. Iljós
kom fljótlega að hér þarf að
ganga ígegnum langtferli og
á endanum að taka lokapróf
ljósmæðranema héma, sem er
bóklegt og verklegt, áður en
skráning sem ljósmóðir fæst.
Einkarekin fæðingaþjónusta
Hér eru þrjú einkarekin sjúkrahús með
fæðingadeildum og síðan starfa fæðingalæknar
sjálfstætt á stofum og sinna meðgöngueffirliti.
Ljósmæður geta ekki unnið sjálfstætt innan jiessa
kerfis nema á þann hátt sem ég er að gera, þ.e. í
heimaþjónustu, ungbamaeítirliti og sem ráðgjafar
á ýmsum sviðum. A sjúkrahúsunum sinna þær
konum í fæðingu,
Ljósmæðrablaðið c
apríl 2002 ^