Ljósmæðrablaðið - 15.04.2002, Side 6
draumana verða að veruleika og fá stuðning
við það sem ég er að gera án þess að lenda í
stoppi vegna boða og banna af nokkurri gerð.
Mínir skjólstæðingar eru yfirleitt útlendingar
sem eru hérna í Hong Kong í stuttan tíma,
ijarri sínum ættingjum og vinum og eru því
mjög þakklátir fyrir þjónustu sem er persónuleg
og svipar til þess sem þeir eiga að venjast úr
sínu heimalandi. Orðið berst fljótt og ég hef
fengið mikinn stuðning við það sem ég er að
gera, sem einnig að sjálfsögðu virkar mjög
hvetjandi. Samstarf við ljósmæður og lækna
á sjúkrahúsunum hérna er líka af hinu góða
og gefur mér innsýn inn í þá vinnu sem þar
fer fram.
Hvað vinnuna sjálfa varðar eru aðstæðurnar
töluvert öðruvísi en heima á íslandi. Þar er
munurinn helst fólginn í skjólstæðingahópnum,
sem er eins og áður sagði útlendingar sem
koma tímabundið til dvalar hér í Hong Kong.
Oftast eru þetta konur sem eru 30 - 40 ára,
að eignast fyrsta barn, konur á framabraut og
í mjög skipulögðu lífsmynstri. Barnið er
venjulega hluti af þessari skipulagningu og
ekki er gert ráð fyrir öðru en barnið aðlagist
fjölskyldurútínunni á skömmum tíma.
Konurnar þurfa flestar að fara að vinna sex
vikum eftir fæðingu og flestar þeirra vinna út
alla meðgönguna. Ég hef á tilfinningunni að
líkamleg vandamál séu færri á meðgöngunni;
grindargliðnun nánast þekkist ekki, og konur
hérna séu í almennt betra líkamlegu ástandi
en heima á íslandi. Ég tek það þó fram að
þetta á við mína skjólstæðinga og ég hef ekki
innsýn inn í þá vinnu sem fer fram inni á
ríkisreknu sjúkrahúsunum að þessu leyti.
Rútína
lykilorð í uppeldi Hong Kong foreldra
Mitt starf felst því aðallega í því að fara í
heimaþjónustu og hjálpa konunum af stað með
brjóstagjöf og almenna umönnun barnsins.
Ég fer yfirleitt fjórum til átta sinnum til hverrar
konu og stoppa í klukkutíma í hvert sinn.
Helstu vandamálin tengjast því að konurnar
þurfa að byrja að vinna snemma og að þær
hafa ekki nægilega mjólk. Undarlegt sem
það kann að hljóma virðast allar konurnar eiga
auðvelt með að leggja barnið á brjóst og þann
tíma sem ég hef unnið hef ég aldrei séð
innfallnar geirvörtur eða vandamál sem tengjast
því að barnið vilji ekki taka brjóstið. Sárar
geirvörtur eru samt augljóslega alþjóðlegt
vandamál og þá er gripið til frosinna salatblaða
og lanolin krems.
Eftir að brjóstagjöf er komin á góðan skrið er
Ljósmæðrablaðið
aprí! 2002
Undarlegt sem það kann
að hljóma virðast allar
konurnar eiga auðvelt
með að leggja harnið á
brjóst og þann tíma sem
ég hefunnið hef ég aldrei
séð innfallnar geirvörtur
eða vandamál sem
tengjastþví að barnið vilji
ekki taka brjóstið. Sárar
geirvörtur eru samt
augljóslega alþjóðlegt
vandamál og þá ergripið
til frosinna salatblaða og
lanoiin krems.
en læknirinn tekur alltaf á móti - og í þeim
tilfellum sem hann nær ekki að koma í tæka
tíð þurfa ljómæðurnar að fylla út skýrslu um
að óhapp hafi átt sér stað! Samt sem áður er
mikil list að kalla læknana til á réttum tíma
því þeir vilja helst ekki þurfa að eyða meira
en hálftíma inni á fæðingastofunni, en taka
það óstinnt upp ef of seint er kallað (enda
nokkur hundruð þúsund krónur í húfi).
Deildirnar eru mun líkari hótelum en
sjúkradeild, enda er kostnaðurinn eftir því.
Algengt er að konur séu að borga nálægt 500
þúsundum fyrir eðlilega fæðingu og sængurlegu
í þrjá daga. Þar að auki borga þær læknunum,
fyrir öll lyf, deyfingar og allt sem notað er
sérstaklega. Það er því betra að vera vel
tryggður ef fólk ætlar að nýta sér þetta kerfi.
Konur geta valið að fara í keisara og er tíðnin
um 30 - 35 % á einkareknu sjúkrahúsunum.
Byrjað er að íhuga og ákveða gangsetningardag
strax við 40 vikna meðgöngu, og nánast engin
kona gengur með lengur en í 41 viku.
Mænurótardeyfing er notuð í 80 - 90 % tilfella
og tíðni sogklukku og tanga er nokkuð há.
Islensk ljósmóðir í Hong Kong
Nú spyrja sig sjálfsagt flestir að því í hverju
mitt starf er fólgið og hver sé munurinn á Hong
Kong og Islandi fyrir ljósmóður?
Þetta er mjög sérstakt vinnuumhverfi og ég er
að kynnast alveg nýrri hlið á starfinu mínu.
Skapast það fyrst of fremst af því að vinn
sjálfstætt innan einkarekna kerfisins hérna og
hef því alla möguleika á að bjóða upp á
fjölbreytta og góða þjónustu á þann hátt sem
ég vil helst. Ég hef fundið hversu auðvelt er
að koma hugmyndum í framkvæmd, láta