Ljósmæðrablaðið - 15.04.2002, Síða 19
Skipulag fósturskimunar
1. Fyrsta heimsókn til ljósmóður eða læknis,
7-10 vikna meðganga.
2. Bæklingur afhentur um fósturskimun.
Skimun felst í ómmældri hnakkaþykkt og
mælingu lífefnavísanna frítt 13-hCG og PAPP-
A við 11-13 vikur. Einfaldar upplýsingar
gefnar varðandi grunntíðni fósturgalla (3-5%).
Líkur á litningagöllum miðað við aldur móður
ræddar (sjá töflu).
Ef nióðirin
* verður 35 ára við fæðingu;
* hefur áður fætt fóstur/barn með litningagalla;
* hefur sterka ættarsögu;
er boðin legvatnsástunga við 15 vikur eins og
áður EÐA fylgjusýni við 11-12 vikur.
Ef konan óskar frekar eftir líkindamati, er það
velkomið.
Utskýra þarf að fósturskimun:
* felst í blóðprufu og ómskoðun (samþætt
líkindamat)
* er valkostur fyrir þá sem þess óska
* er óbein aðferð til að meta líkur á
vandamálum svo sem litningagöllum,
hjartagöllum og fleiri vandamálum fósturs
* samþætt skimun hefur næmi um 90% m.t.t.
þrístæðu 21
* 5% líkur eru á að mælt verði með inngripi
í kjölfar samþættrar skimunar
(ástungu/fy lgj usýni)
* skimun með líkindamati kemur ekki í stað
1 egvatnsástungu/fylgj usýnis
3. Beiðni til Fósturgreiningardeildar og vegna
blóðrannsóknar afhent og konunni vísað þangað
ef frekari upplýsinga er óskað (s. 560-1158).
Bókað fýrir konuna ef hún óskar eða hún hringir
sjálf.
4. Ráðgjöf í tengslum við fósturskimun er
veitt af Ijósmæðrum og læknum
Fósturgreiningardeildar, bæði fyrir og eftir
prófun, og eftir því sem þörf krefur.
5. Sérhæfð erfðaráðgjöf er veitt eftir því sem
þörf krefur. Hægt er að kalla til sérfræðinga
af öllum deildum spítalans eftir því sem við á
hverju sinni.
6. Þegar konan kemur í ómskoðun er ekki gefin
endanleg niðurstaða, heldur beðið eftir
niðurstöðu lífefnavísa svo hægt sé að gefa
samþætta niðurstöðu. Ef hnakkaþykkt er
augljóslega aukin er strax boðið inngrip.
Samþætt líkindamat er gefið á tölulegu formi
t.d. 1:1766. Ef niðurstaða úr samþættu
skimprófi er > 1:300, er mælt með fylgjusýni
eða legvatnsástungu.
7. Eins og áður er öllum konum boðið að koma
í ómskoðun við 19-20 vikur.
Hildur Harðardóttir, yfirlæknir,
Kvennadeild LSH
Fréttatilkynning
Frá Félagi íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna j
Félag íslenskra fæðinga og kvensjúkdómalækna (FÍK) stendur fyrir almennum fræðslufundij
föstudaginn lO.maí 2002 kl 15:00 þar sem Dr. Frank Chervenak, Given Foundation Professor and !
Chairman, Obstetrician and Gynecologist In-Chief, Department of Obstetrics and Gynecology, j
New York Weill Cornell Medical Center heldur fyrirlestur um upplýst samþykki fyrir i
fósturrannsóknum, svo sem ómskoðunum. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og ber heitið: Prenatalj
informed consent for sonogram; Evolution from second to first trimester. Fundurinn er haldinn !
að Hlíðarsmára 8, 4.hæð, í fundarsal Læknafélags íslands. Allir sem hafa áhuga á efninu erií
velkomnir á fundinn. Kaffi á staðnum.