Ljósmæðrablaðið - 15.04.2002, Blaðsíða 24
TAFLA 1 Mismunandi einkenni sykursýki 1 og 2
Einkenni Insúlínháð sykursýki Insúlínóháð sykursýki (tegund 1) (tegund 2)
Algengi 0,1 -0,5% 5 -10%
Þyngd eðlileg ofþyngd
Aldur við upphaf sjúkdóms < 20 ára >30 ára
Insúlín í blóði lítið eða ekkert breytilegt
Ketósis já sjaldan eða aldrei
Tvíburarannsóknir 30-50% fylgni 100% fylgni
Eyjafrumumótefni til staðar hjá 70% nýgreindra sykursýkissj úklinga Nei
Ref: Hagay ZJ, Reece EA Diabetes mellitus in pregnancy, in Medicine of the fetus and mother, Reece,
Hobbins, Mahoney and Petrie (eds) JB Lippincott Company, Philadelphia, 1992, p.984.
MODY (Maturíty Onset Diabetes ofthe Young).
Þetta er fjölskyldubundin sykursýki sem kemur fram
á unglingsárum eða snemma á fullorðinsárum og
erfist á ríkjandi hátt (7). Sex tegundir af MODY
finnast á Islandi en þessi tegund er um 2-5% af
öllum tílfellum af sykursýki (8).
“Secunder” sykursýki. Sykursýkiíkjölfarbrottnáms
briskirtOs vegna sjúkdóms eða slyss.
Flokkun sykursýki
Priscilla White, læknir við hina þekktu Joslin
sykursýkideild í Boston, setti fram flokkun á sykursýki
þar sem hækkandi bókstafir benda til alvarlegri
sjúkdóms og meiri fylgikvilla. Þessi flokkun hefúr
verið aðlöguð breyttum aðstæðum og er handhæg
flokkun til að meta alvarleika sjúkdóms og líkur á
fylgikvillum móður og bams. Tafla 2.
Erfðir sykursýki
Sykursýki kemur ffarn hjá einstaklingum sem hafa
að upplagi auknar líkur á að fá sjúkdóminn (genetic
suscepúbility). Sykursýki af tegund 1 tengist HLA
vefjaflokkum en 90% sjúklinga eru með
undirflokkana DR3 eða DR4 (9). Hins vegar er
sykursýki af tegund 2 talin erfast með ríkjandi
hætú (autosomal dominant) en ófúllkominn tjáning
(penetrance) er fýrir hendi þannig að ekki nærri
allir með þá erfðaeiginleika fá sjúkdóminn (7).
Enginn ákveðinn erfðafræðilegur vísir (genetic
marker) tengist sykursýki af tegund 2 þó svo erfðir
skipú augljóslega máli sem sést úl dæmis á því að
eineggja tvíburar fá nánast alltaf báðir sykursýki.
Ef móðir hefur sykursýki af tegund 1 eru 1,3%
líkur á að barn hennar fái sjúkdóminn en ef faðir
barns hefur sjúkdóminn aukast líkur í 6% (10).
Tafla 2 Flokkun White's á sykursýki
Flokkur Aldur við upphaf sjúkdóms Lengd sjúkdóms Fylgikvillar
A óháð aldri óháð aldri greint á meðgöngu (gestational diabetes;GDM) engar æðaskemmdir
A1 Meðgöngusykursýki, sykurstjórn næst með mataræði eingöngu
A2 Meðgöngusykursýki, insúlínháð
B IS* > 20 ára <10 ár engar æðaskemmdir
C IS > 10 < 19 ára 10-19 ár engar æðaskemmdir
D IS <10ára >20ár æðaskemmdir, etv hækkaður BÞ
F IS # + nýrnaskemmdir (nephropathy)
H IS # + kransæðasjúkdómur
R IS # + skemmdir í augnbotnum (retinopathy)
T IS # *IS: Insúlínháð sykursýki # óháð aldri + óháð tímaalengd sjúkdóms + með gjafanýra (transplant)
Heimild: 1980 American Diabetic Association, aðlagað frá White P: Pregnancy complicating diabetes. Am J Med 7:609,1949.