Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Qupperneq 30
Ljósmæður kuaddar
I________■«£_J
Sólveig Matthíasdóttir fæddist í Reykjavík
20. maí 1937. Hún lést í bílslysi ásamt þeim
Margréti og Sigurbjörgu 21. ágúst 2002, 65
ára að aldri. Hún útskrifaðist úr
Ljósmæðraskóla íslands 30. september 1958
og starfaði fyrstu tvö árin á fæðingadeild
Landspítalans. Hún hóf störfá Fæðingaheimili
Reykjavíkur 1961 og starfaði þar allt til lokunar
þess árið 1992. Þá hóf hún störf á
sængurkvennadeild Landspítalans þar sem hún
starfaði til dauðadags. Ljósmæðrafélagið á
Sólveigu margt að þakka í störfum hennar í
þágu félagins og ljósmæðrastéttarinnar. Hún
sat í stjórn félagsins og ritnefnd
Ljósmæðrablaðsins til margra ára. Hún sat
í ritnefnd ritsins Ljósmæður á íslandi og var
formaður nefndarinnar mestan hluta
undirbúningstíma þess mikla þrekvirkis sem
útgáfa þess rits var. Sólveig var fulltrúi
félagsins víða og sinnti því hlutverki með
miklum sóma. Utför Sólveigar var gerð frá
Hjallakirkju í Kópavogi 2. september 2002.
Blessuð sé minning hennar.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir fæddist að
Hundastapa, Hraunhreppi, Mýrum 27. júlí
1929.Hún lést í bílslysi 21. ágúst 2002, 73 ára
að aldri. Hún útskrifaðist úr Ljósmæðraskóla
íslands 30. september 1960 og starfaði á
Fæðingadeild Landspítalans og við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri fram til 1963.
Hún hóf störf á Fæðingaheimili Reykjavíkur
1963 þar sem hún starfaði lengst af og var
aðstoðarforstöðumaður þar ffá 1978. Eftir að
Fæðingaheimilið var lagt niður árið 1992
starfaði Sigurbjörg um tíma á
sængurkvennadeild Landspítalans eða þar til
hún fór á eftirlaun. Henni þökkum við
óeigingjörn störf í þágu Ljósmæðrafélags
íslands og skal þar helst minnst starfa hennar
í stjórn félagsins og í ritnefnd ritsins
Ljósmæður á íslandi. Utför Sigurbjargar var
gerð frá Hallgrímskirkju
6. september 2002 og var hún jarðsett á Ökrum
á Mýrum sama dag. Blessuð sé minning
hennar.
Brjóstagjafaráðgjafapróf IBCLC
Próf þetta er tekið einu sinni á ári í öllum heiminum alltaf síðasta mánudag í júlí.
Afangi þessi stuðla að bættri brjóstagjöf. Og betri samhæfingu í okkar störfum.
Alls tóku 13 þátt í IBCLC prófinu 2002 á íslandi og þær sem náðu voru:
Alma María Rögnvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur , Anna Lára Kolbeinsdóttir sjúkraliði
BjörkTryggvadóttir ljósmóðir/hjúkrunafræðingur, Guðrún Jónsdóttir versluninni Móðurást
Hermína Stefánsdóttir hjúkrunarffæðingur, Ingibjörg Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur
Miðstöð heilsuvemdar bama, Jóna Margrét Jónsdóttir hjúkmnarffæðingur Miðstöð heilsuvemdar
barna, Jóhanna Skúladóttir ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur Miðstöð mæðraverndar,
Lilja Einarsdóttir ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur Landspitala háskólasjúkrahúsi,
Sigríður Sía Jónsdóttir ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur Miðstöð Mæðravemdar,
Sigríður Pálsdóttir ljósmóðir Selfossi,