Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2004, Blaðsíða 16
1 6 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2004
Fréttir DV
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2004 17 .
Hvaðan kom? ávextinnip?
Samkvæmt hollustukörfu Manneldis-
ráðs skal fullorðinn einstaklingur dag-
lega innbyrða 500 grömm af grænmeti,
ávöxtum og safa, auk kartaflna. Hýði
eða stönglar sem fara forgörð-
um teljast ekki með í 500
grömmunumm.
Vissulega hefur
neysla á græn-
meti og ávöxt-
um aukist
þótt enn
sé nokk-
uð í að
hálft kg hverfi ofan í hvern og einn á dag.
f landskönnun sem gerð var á mataræði
íslendinga árið 2002 kom fram að full-
orðinn einstaklingur neytti daglega 232
gr. af ávöxtum og grænmeti. „Ef við ber-
um okkur saman við nágrannaþjóðirnar
og ráðleggingar er neyslan samt ennþá of
lítil og hún þarf að aukast,“ segir Hólm-
fríður Þorgeirsdóttir matvæla- og nær-
ingarfræðingur hjá Manneldisráði fs-
lands.
Einstaka sinnum slæðast óboðnir gestir
með sendingunum. Vitað er um heim-
sóknir leðurblöku, engisprettu og ein-
o
rs
Kosta Ríka, Kól-
umbía oa Panama
Bananar eiga sér langa sögu en
talið er að þeir séu upprunnir í suð-
austurhluta Asíu. Orðið banani
kemur úr arabísku þar sem „banan"
merkir fmgur. Hvenær menn byrj-
uðu að neyta banana er ekki ljóst en
trúlega var það langt aftur í fomöld.
Ömggt þykir að Alexander mikli haft
kynnst þessum góða ávexti þegar
hann ferðaðist um Indland á fjórðu
öld fyrir Krist. Bananar bámst til
Evrópu undir lok 19. aldar og urðu
fljótt afarvinsælir.
Meðalkilóverð: 154 krónur.
o
hverra áttfættlinga en slíkt gerist
afar sjaldan. Ávextir og grænmeti
er flutt á milli landa í kæligámum
þannig að oftar en ekki fer illa fyrir
laumufarþegunum. Áður en varan
er sett á markað hér er hún geymd í
kæligeymslum.
Efnainnihald ávaxta og grænmetis
skal vera samkvæmt alþjóðlegum
stöðlum og fylgst er með því reglu-
lega. Varan er skoðuð áður en hún yfir-
gefur heimaland sitt og hér athugar Um-
hverfis- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur
hana vikulega.
Kanada, Holland,
Frakkland, Kína
Rauðu eplin eru hollensk, grænu
frönsk og kínversku kallast Fuji. Epli
þykja meinholl og rannsóknir sýna
að borði maður fimm epli eða fleiri
batnar öndun og lungnastarfsemi
yfirleitt.
Meðalkílóverð: 164 krónur.
o
Suður-Afríka
Litkaber eru talin eiga uppruna
sinn í Víetnam og hafa verið ræktuð
í suðausturhluta Asíu í yfir þúsund
ár. Litkaber em einn vinsælasti
ávöxturinn í Kína.
Meðalkílóverð: 750 krónur.
o
o
Spánn
Sagt er að sítrónur hafi borist til
Kína frá Kasmír fyrir þúsundum ára.
Frá Kína munu þær hafa borist til
Persíu og þannig um Miðjarðarhafs-
löndin. Frá Spáni munu þær svo
hafa borist norður eftir Evrópu.
Meðalkílóverð: 160 krónur.
• i ,
| ■*
Indónesía
ígulber ganga undir nafninu
rambutan í heimalandinu. ígulber
eru meðal vinsælustu ávaxta í Asíu.
Meðalkílóverð: 1.400 krónur.
o
Perú oa Brasilía
Mangótréð er uppmnnið í Asíu
og getur orðið gríðarhátt, um 25
metrar á hæð. Mangó er bæði safa-
ríkur og næringarríkur ávöxtur.
Meðalkílóverð: 313 krónur.
o
Holland oa Kína
Töluverður munur er á perum
eftir því hvort þær koma frá
Hollandi eða Kína. Perurnar vaxa á
trjám og þykir peruviður hentugur
til húsgagnagerðar.
Meðalkflóverð: 179 krónur.
Kína
o
Hreðkumar seljast upp þegar
japanski túnfiskveiðiflotinn kemur í
land til að ná í vistir.
Meðalkflóverð: 140 krónur.
0
Kína og Nvja-Siáland
Kívíávöxturinn eða loðber er
ávöxtur klifurfléttu og eru uppruna-
leg heimkynni í Kína. Ávöxturinn
tók að berast til annarra landa á 19.
öld og ræktun hans hófst að ein-
hverju leyti á fyrstu árum 20. aldar,
bæði á Nýja-Sjálandi og í Kaliforníu
í Bandarflcjnum.
Meðalkflóverð: 279 krónur.
Spánn, ísraei
Kanaríevjar
Tómatar eru taldir ávextir í
fræðilegum skilningi en þeir eru
einær jurt af kartöfluætt. Ræktun á
tómötum hófst hérlendis í gróður-
húsum um 1930. ísraelsku tómat-
arnir skera sig frá hinum að því leyti
að þeir hanga saman á blóminu.
Meðalkflóverð: 200 krónur.
Suður-Afríka, Chile,
Bandaríkin, Ítalía
Vínber vaxa á vínviði sem er tal-
inn eiga upprana sinn í Litlu-Ásíu
en hefur breiðst út sem nytjaplanta
um allar álfur. Sú planta er ein elsta
rækturnarplanta mannkyns, hefur
verið ræktuð í 5.000-6.000 ár og er
til í þúsundum afbrigða. Vínberin
em ýmist græn eða blá og vaxa í
þéttum klösum. Rúsínur og kúrenn
ur eru þurrkuð vínber.
Meðalkflóverð: 507 krónur.
m
Israel og Bandaríkin
Ekki er vitað með vissu hvaðan
sætar kartöflur eru upprunnar en
þær eiga sér langa sögu í Bandaríkj-
unum þar sem þær hafa verið rækt-
aðar síðan 1648. Til er afbrigði sem á
ensku kallast yam og kemur upp-
runalega ff á Afríku eða Kína.
Meðalkflóverð: 259 krónur.
Spánn oa Holland
Jarðarber eru ættkvísl plantna af
rósaætt. Þær eiga uppruna á norð-
urhveli jarðar og jarðarberin vaxa til
að mynda villt í gróðursælum
brekkum á móti suðri allvíða um ís-
land. Jarðarberin sem við þekkjum
úr búðum eru hins vegar ræktuð og
flest til orðin við kynblöndun nokk-
urra amerískra tegunda.
Meðalkflóverð: 1.154 krónur.
Bandaríkiunum
Appelsína er tökuorð í íslensku
og talið er að það hafi borist hingað
úr dönsku um miðja nítjándu öld.
Þaðan talið komið úr lág-þýsku.
Portúgalar fluttu fyrst sætar appel-
sínur frá Kína til sunnanverðar Evr-
ópu á 16. öld en á miðöldum bárust
beiskar appelsínur aftur á móti frá
Indlandi. Til aðgreiningar voru nýju
appelsínurnar sem bámst til hafna
við Norðursjó snemma á 18. öld
kallaðar Apel de Sina - Epli frá Kína.
Meðalkflóverð: 154 krónur.
Kína og Taíland
Drekaávöxtur kemur upphaflega
frá Mið-Ameríku. Ávöxturinn er í
raun kaktusafbrigði og þykir bragð-
ið minna á kíví.
Meðaíkflóverð: 999 krónur.
m
Munurinnn á ávöxtum og grænmeti kemur oft við
sögu þegar grænmetisætur skilgreina mataræði sitt.
„Semivegetarian“ nefnist sá sem borðar jurtafæðu
og útilokar sumar dýraafurðir. Sá sleppir rauðu kjöti
en borðar fuglakjöt, sjávarfang, mjólkurafurðir og
egg-
„Lacto-ovo-vegetarian“ borðar jurtaafurðir,
egg og mjólkurafurðir úr dýraríkinu.
„Lacto-vegetarian“ borðar ein-
unigs mjólkur- og jurtaafurðir.
„Vegan“ borðar jurtaafurðir
en útilokar allar dýraafurðir.
„Fructarian" borðar ein
ungis jurtaafurðir sem má
tína án þess að skemma
móðurjurtina samkvæmt
þröngum skilgreiningum.
(Byggt á upplýsingum af
Vísindavef Háskóla Islands,
vefjum Samkeppnisstofnunar
og Manneldisráðs íslands og
frá Örvari Karlssyni.)
m
Kenía
Lárpera eða avókadó er ávöxtur
af lárviðarætt, upprunninn í vestur-
hluta Mexíkós. Lárperurnar sem fást
hérlendis eru grænar og pemlaga en
ýmis önnur afbrigði ávaxtarins eru
þekkt, svo sem linöttótt lárpera,
dökkrauð að lit.
Lárpemr hafa um langa hríð ver-
ið ræktaðar í Suður-Ameríku en al-
mennur áhugi á ávextinum kviknaði
ekki fyrr en um aldamótin 1900.
Meðalkflóverð: 420 krónur.
•m
: I