Akranes - 01.01.1959, Side 8

Akranes - 01.01.1959, Side 8
augu og eyru og hagnýta lífsreyuslu ann- arra. Eigi má heldur gleyma þeim áhrif- um, sem harni hefir orðið fyrir í æsku og uppvexti á góðu merkisheimili. Hefir slikt löaigum dregið drjúgt. En dæmi þessa merkilega manns er ein sönnun þess, að „enginn verður óbarinn biskup“, því að saga hans er um lifandi áhuga, ó]>reytandi elju og áhuga fágæta liknarkennd. Því auk þess að hann hefir hjálpað fjölda mörgum án þess að ætlast til lofs eða launa, hefir hann verið stórgjöfull á allra vitorði og hefir hans góða kona átt þar sinn þátt og eigi síðri. Hefir vissulega mátt um þau bæði segja löngum, að „vinstri hendin vissi eigi um hvað sú hægri gerði“. Heiðursmerki Fálkaorðunnar var Jón Pálsson sanndur árið 1935. En það sem bezt er, að hann hefir, og þau hjón, notið verðskuldaðrar virðingar samtíðarfólksins og mestrar af hálfu þeirra, er þekktu þau bezt. Jón Pálsson var fríður maður sínum. gáfulegur og hvatlegur í spori. íslenzku kirkjimni á að vera ljúft að þakka öllum þeim, sem lagt hafa sinn skerf eftir megni til hjálpar, liknar og menningarmála, þvi þar er slegið á strengi, sem hún sjálf hefir löngum slegið á og eru í fyllsta samræmi við hugsjón hennar. Um hjónin Jón Pálsson og önnu Ad- ólfsdóttur má fá frekari fróðleik í tíma- ritinu „Öðinm“ 1922. Séra HALLDÓH JÓNSSON frá Reynivöllum. ísólfur Pálsson /. ti. marz iHyt — d. 17. febrúar 1941. Sérstök ástæða er til þess, jafnvel fyrir mig, að minnast þessa góða bróður mins og mæta manns, og þess hefði ég eigi þurft að bíða, að hann félli frá, etn itr því sem nú er komið, vil ég eigi draga það lengur. Auk þess sem flest blöð bæjarins hafa þegar mirmzt hans með réttu og öll á einn veg, sem sé loflegan mjög, ýkjulaust með öllu. Þá voru ræður þeirra séra Árna Sigurðssonar við útför Isólfs 1. marz, svo og útvarpsræða skólastjóra Freysteins Gunmarssonar á 70. afmæli ísólfs, hinn 11. s. m., svo hugðnaunar, sannar og rétt- ar, að ég tel mig litlu eða engu færan um að bæta, og vil vísa til alls þessa, þeim, er þvi kynnu að vilja kyrmast. En það er einkum ýmislegt, sem ég einn varð var við i fari þessa athugula og glöggskyggna manns, er ég hygg að fáir aðrir hafi um vitað og ég vildi að einhvers staðar kæmi fram, jafnvel þó ég hafi vissu fyrir þvi, að Isólfur taldi það einkamál sín, sem hann eigi vildi flíka framan í aðra og taldi enga nauðsyn til bera, að aðrir fengju vitneskju um. Það verða því aðeins fá dæmi af fjölda mörgum, sem ég vil minnast á hér um sérstaka athygli hans í veðráttu-einkennum, sjúkdómstilfellum og ráðum hans við þeim, þótt vitanlega væri mér eigi kunnugt um meðöl þau, er hann notaði og setti saman. Isólfi var jafnan hugleikið mjög um það, að ganga niður að sjó og líta eftir ýmsu, er að sjóferðum laut. Varð ég þó oft var við það, að þar sá hann ýmislegt, er hvorki ég né aðrir höfðum tekið eftir að þar væri að sjá eða heyra, en varð honum þó til bendinga og leiðbeininga, sem hann lét ekki uppi við aðra hverjar voru, nema að væri spurt eða tilefni gæfist til að minnast á það í sambandi við eitthvað ann- að. Þannig var það eitt sinn á haustdegi i glaðasólskini, lygnu veðri, „rjómasléttum sjó“, að við gengum saman niður á hafn- arbakka; lágu þar mörg skip, bundin við hafnargarðana. Segi ég þá við Isólf: „Það er ekki úfinn á sjónum núna; hann er spegilsléttur og engan vindblæ að finna“. 8 AKRANES

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.