Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 35
Á sævarslóð, um holt. og haga
hófust gróður störf.
Horfði fróð til fegri daga
framgjörn þjóð og djörf.
Ungur varst og vildir brjóta
vesöld alla á bak,
handa þinna og hreysti njóta
hefja Grettistak.
Ut við sjóinn sástu gróa
sigurvænleg ráð,
)>ar sem bjó við firði og flóa
fólkið beygt og hrjáð.
Þangað skyldi stýrt um strauma
stækkuð fleyin smá.
Láta rætast djarfa draiuna,
djúpt um víðan sjá.
Sagan vill á okkur }rrða
orði, hvergi skráð.
Það er margt að þakka og virða,
þegar að er gáð.
öldur hníga, árin kveðja
æsku ljómar vor.
Sumarhlýir geislar gleðja,
grær um feðra spor.
(
Björn Hannesson á Litlateig.
Breytt er tið, og lif í landi,
langt um veg þú spyr.
Hvað sem bíður, stofninn standi
sterkur nú sem fyr.
Æfin liður, áfram miðar
opnast veröld ný.
Vertu sa'll, þig signi friðar
— sólin l>ak við ský.
Kjartan Ólafsson.
AKRANES
35