Akranes - 01.01.1959, Page 35

Akranes - 01.01.1959, Page 35
Á sævarslóð, um holt. og haga hófust gróður störf. Horfði fróð til fegri daga framgjörn þjóð og djörf. Ungur varst og vildir brjóta vesöld alla á bak, handa þinna og hreysti njóta hefja Grettistak. Ut við sjóinn sástu gróa sigurvænleg ráð, )>ar sem bjó við firði og flóa fólkið beygt og hrjáð. Þangað skyldi stýrt um strauma stækkuð fleyin smá. Láta rætast djarfa draiuna, djúpt um víðan sjá. Sagan vill á okkur }rrða orði, hvergi skráð. Það er margt að þakka og virða, þegar að er gáð. öldur hníga, árin kveðja æsku ljómar vor. Sumarhlýir geislar gleðja, grær um feðra spor. ( Björn Hannesson á Litlateig. Breytt er tið, og lif í landi, langt um veg þú spyr. Hvað sem bíður, stofninn standi sterkur nú sem fyr. Æfin liður, áfram miðar opnast veröld ný. Vertu sa'll, þig signi friðar — sólin l>ak við ský. Kjartan Ólafsson. AKRANES 35

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.