Akranes - 01.01.1959, Qupperneq 50
6. Bima, fædd 12. apríl 1923, gift í Ame-
ríku manni að nafni Preben Olsen.
7. Guðmundur Ingimar, fæddur 23. ágúst
1928, búsettur í Reykjavík, kvæntur
Guðrúnu Sigurðardóttur, ættaðri úr
Skagafirði.
8. Sigurlaug, fædd 8. janúar 1931, gift
Áka Stefánssyni stýrimanni frá Dal
vik. Þeirra dóttir: Þóra.
Magnús hefur mikið umbaút húsið síð-
an hann keypti það, bæði utan og innan.
Bæði virðast hjónin vera })rifin, prúð og
grandvör, svo að telja verður þau góða
innflytjendur. Er mér sagt, að Þórunn
kunni hér sérstaklega vel við sig.
f
i
125. Hjarðarhóll — Hóll n.
Allt virðist benda til að þessi litli bær
hafi verið byggður árið 1900 eða 1901,
þvi að hann virðist vera merktur inn á
kortið af Skipaskaga sbr. bls. 102—103
í 2. hefti blaðsins 1958.
Þessi bær er byggður af Guðmundi
Árnasyni, Vigfússonar frá Heimaskaga,
og virðist ekki vera notaður sem íbúð fyrr
en 1902. Þetta er ofurlítil] timburbær og
sést ekki að hann hafi verið virtur á }>essu
tímabili.
Við manntalið 1902 býr þetta fólk i
bænum:
Guðmundur Árnason, 36 ára.
Sigurrós Gunnlaugsdóttir, 44 ára.
Guðríður, 14 ára.
Guðrún, 7 ára.
Svanfríður, 5 ára.
Ámi, 3 ára.
Valdimar Júlíus, 2 ára, — allt þeirra
böm.
Þau Guðmundur og Sigurrós giftu sig
17. september 1892. Hún er ættuð norðan
úr Hrútafirði og kemur hingað á Akranes
sem ráðskona til Áma í Heimaskaga 1891,
en hann var þá orðinn ekkjumaður. Þá
er Sigurrós talin 33 ára og kemur með
tvö börn sín. Hún var áður gift Valdimar
Gíslasyni, sem einnig var ættaður að norð-
an. Þau áttu saman tvö böm, Emilíu, sem
dó ung, og Sigurð trésmið í Hafnarfirði,
sem enn er á lífi, kvæntur Sigríði Böðvars-
dóttur, og hafa þau eignast 9 börn.
Þegar Guðmundur byggði Hól, var það
fyrir ofan alla nýbyggð á Skaga, var
byggt í garðlandi, og fékkst siðar á erfða-
festu eins og þá tiðkaðist mjög. Sagnir
herma, að þar sem Hóll var nú byggður,
hafi á dögum Brynjólfs Sveinssonar bisk-
ups vrerið stekk jarsta'ði frá nýbyggð hans
í ívarshúsum.
Guðmundur Árnason var liðlegur mað-
ur og góður drengur, en jafnan heilsuveill,
þó stundaði hann ávallt sjó meðan hann
mátti, enda var vart um aðra atvinnu hér
að ræða. Guðmundur andaðist 17. júlí
1914, þá talinn 47 ára gamall. Sigurrós
Gunnlaugsdóttir, kona Guðmimdar, var
óvenju hæglát og prúð kona, grandvör og
samvizkusöm. Hún bjó áfram á Hól með
börnum þeirra hjóna, en þau vom þessi:
1. Guðríður, löngu dáin, giftist Gunn-
laugi Lllugasyni skipstjóra i Hafnar-
firði. Fór hann síðar til Ameriku og
gerðist þar dugmikill togaraskipstjóri.
Þeirra börn:
a. Guðmundur, skipstjóri, kvæntur Ed-
ith Jenson, norskri að ætt. Þeirra
böm: Carol Ann og Nansy. Þau em
búsett í Boston í Bandaríkjunum.
b. Bjöm Illugi, stýrimaður, kvæntur
Ásu Maríu Þórhallsdóttur frá Vest-
mannaeyjum. Þeirra dóttir: Ingrid
Margrét. Þau em búsett í Flórida
í Bandar. N- Ameríku.
2. Emelía, giftist Jóni bónda Jónssyni í
Neðrí-Hrepp í Andakíl. Þeirra böm:
a. Kristín Sigurrós, giftist Magnúsi
Daniel Ólafssjmi. Þeirra böm: Birg-
50
AKRANES