Akranes - 01.01.1959, Side 52
/-------------------------------
Ólafur Gunnarsson skrifar
Xlm
LEIKLIST
★ Allir synir mínir
Leikrit í þremur þáttum eftir Arthur Miller.
— ÞýSandi: Jón Óskar. — Leikstjórú Glsli
Halldórsson.
Það leikur ekki á tveim tungum, að
Arthur Miller einn snjallasti leikrita-
höfundur, sem nú er uppi og skipar raun-
ar rúm meðal hinna beztu í heimsbók-
menntunum. Leikrit frá hans hendi hlýt-
ur því alltaf að vekja áhuga þeirra, sem
fylgjast með því, sem gerist í heimi Þalíu.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir í vetur
„Alla syni mína“ eftir Miller og er sú
sýning félaginu til mikils sóma.
Efni þessa leiks er lýsing á hugarstríði
fjölda manna að siðustu heimsstyrjöld
lokinni, þegar viðburðir stríðsáranna kasta
geigvænum skuggum á ævibrautir fólks-
ins, en sumir lenda í kolamyrkri hugar-
angistar og vonleysis. Iæikurinn gerist í
Bandaríkjimum.
•Toe Keller verksmiðjueigandi (Brynjólf-
ur Jóhannesson) hefur afgreitt gallaða
flugvélahluta á stríðsárunum og afleiðing-
in er sú, að 21 flugvél hrapar og flug-
mennirnir farast. Joe skortir hugrekki til
þess að taka afleiðingunum og kemur sök-
inni á meðeiganda sinn Deever, sem hlýt-
ur fangelsisvist fyrir. Annar sona Joes
er meðal þeirra, sem saknað er úr stríð-
52
inu og innst inni óttast faðir hans, að
hann muni hafa verið meðal þeirra, sem
fói'ust af hans völdum. Kate ICeller (Helga
Valtýsdóttir), kona Joes, hefur tekið það
ráð að neita því, að sonurinn sé látinn og
á þann hátt dregur hún úr sálarstríði
manns sins. Þessi afstaða frúarinnar hef-
ur þær afleiðingar, að líf Chris Kellers,
hins eftirlifandi sonar, verður óeðlilegt, en
í leikbyrjun er þó svo komið, að hann hef-
ur ákveðið að kvænast urmustu bróður
síns, önnu Deever (Helga Bachmann),
en hún er einmitt dóttir gamla meðeig-
andans í fyrirtækinu, sem nú situr í
fangelsi. Chris þykir innilega vænt um
föður sinn, eai hefur þó greinilega ekki
getað losað sig við þá hugsun, að hann
muni ef til vill vera sekur, ])ótt dómstóll-
inn hafi sýknað hann. Aðrar persónur
leiksins eru George Deever lögfræðingur
(Guðmundur Pálsson), bróðir önnu, Dr.
Jim Bayliss, vinur Kellerfjölskyldunnar
(Árni Tryggvason), Sue Bayless, kona
hans (Guðrún Þ. Stephensen). Lubey-
hjónin nágrannar og vinnir Kellerfjöl-
skyldunnar: Sigríður Hagalín, Steindór
Hjörleifsson og Bert, átta ára, Ásgeir
Friðsteinsson.
Allir islenzkir leikhússgestir vita, að
Brynjólfur Jóhannesson stendur í fremstu
röð íslenzkra leikara og hefur svo verið
um mörg ár. Það mun þó naumast ofmælt,
að með meðferð sinni á Joe Keller hafi
hann farið langt fram úr öllu, sem hann
hefur gert á undanfömum árum og er á-
nægjulegt að sjá, þegar afburðaleikari
slær sín eigin met eins óumdeilanlega og
Brynjólfur gerir hér.
Joe Keller er frá höfundarins hendi
mannleg persóna. Hann hefur alizt upp
í mikilli fátækt og með miklum dugnaði
komizt í góð efni. Þegar syrtir í álinn og
hætta er á, að hann missi eignirnar verður
sjálfselskan og umhyggjan fyrir konu og
AKRANES
j