Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 44
Danmerkur, sem kostaði 35000.00 krónur
danskar fyrir stríð.
Gamli bærinn er afar merkilegt byggða-
safn, sem komið hefur verið upp á þessari
öld. Þar getur að líta hús í gömlum stíl,
húsgögn og borðbúnað, matarílát og fleira
frá liðnum öldum. Þekktast þessara húsa
er „Borgmestergaarden“, sem sézt að
nokkru á myindinni frá gamla bænum.
Helga og Oscar Andreassen tóku sér,
eins og svo oft áður, þegar Islendinga bar
að garði, hvíld frá önnum dagsins og óku
okkur alla leið til Himnahseðarinnar, sem
er rétt hjá Silkeborg. Héraðið í grennd
við Silkeborg er þekkt fyrir mikla náttúru-
fegurð, og frá baaium sigla skemmtiferða-
bátar alla leið upp á Himnahæðina, þaðan
er útsýni gott eftir því, sem gerist í Dan-
mörku, en þar er aldrei um að ræða að
virða fyrir sér mishæðir landsins í 100
kilómetra fjarlægð, eins og hægt er að
gera á björtum sumardögum hér á landi.
Náttúrufegurð Danmerkur er fólgin í hinu
fíngerða, sem maður sér nálægt sér, í
laufskrúði trjánna, blómum bithagans og
korni akranna. Sá, sem aðeins skynjar
fegurðina úr mikilli fjarlægð, sér aldrei
náttúrufegurð í Danmörku. Jón og Gunna
voru meðal þeirra, sem strax njóta hlý-
leikans í danskri náttúru.
Áður en til Danmerkur kom, höfðu þau
ætlað sér að fara víða um lönd og m. a.
heimsækja heimssýninguna í Bruxelles.
Af þessu ferðalagi varð þó ekki. Dönsku
skógarnir, sandströndin og gestrisni fólks-
ins varð þess valdandi, að ferðaáætlunin
breyttist og nú una þau hag sínum betur
en nokkru sinni fyrr í vesturbænum í
minningu þess, að menningu þjóðanna er
ekki að finna í borgrnn og þó allra sízt í
höfuðborgum, heldur í þjóðarsálinni, þar
sem gróður jarðar fyllir vitin sterkum ilmi
og brauðkomið vex í dökkri mold.
44
t--------------------------------
ER DAGRENNING DÁIN?
--------------------------------
Ef svo væri hefur Jónas Guðmundsson
— eins og vænta mátti — gert hreint fyr-
ir sínum dyrum um stefnu blaðsins og
túlkun efnis þau 13 ár, er tímaritið hefur
lifað. Sjálfsagt em margir honiun ekki
sammála um skoðanir, en þar hafa verið
margar mjög eftirtektarverðar greinar run
hin mikilvægustu mál, er ekki aðeins
varðar hina íslenzku þjóð, heldur allar
þjóðir. Má þar til nefna heimspólitízk
vandamál sem standa eins og loftmælir í
voðatíð frá degi til dags. Fagnaðarboð-
skapur Krists hefur tekið hug hans fang-
inn og hann hefur hann túlkað í riti
sínu af mikilli einlægni, en opinskátt og
með stefnufestu, trúaður á mátt og gildi
tilveru Guðs og Krists. Jónasi er alveg
ljóst, að ekkert vit verður í lifi og gjörð-
um þjóðanna, fyn- en mennimir skilja þá
megin nauðsyn, að þeir láti stjórnast af
Guði og vilja hans.
Það er mikill skaði að missa svo gáfað-
ann og gegnan mann af ritvellinum. Ég
vona því, að Dagrenning sé ekki dáin, —
heldur sofi hún — eða að Jónas komi á
einn eða annan hátt fram á ritvöllinn, því
að skarð verður fyrir skildi, ef við hætt-
ixm að finna ritleikni hans, hæfileika hans
og trú á gildi og mátt kenningar Guðs orðs.
Ég vona að Jónas verði virkari á einn
eða annan hátt hér eftir en hingað til. Þú
ert alltof mikill alvörumaður til þess að
þú látir þér það ekki að kenningu verða.
ísland er nú illa á vegi statt fyrir of-
beldi og sundmng landsmanna sjálfra. Þó
verðum við að vona, að þar eygjum við
dagrenning, en lil þess má enginn góður
drer.gur skerast úr leik.
Ó. B. B.
AKRANES