Akranes - 01.01.1959, Page 19

Akranes - 01.01.1959, Page 19
4 Pétur Magnússon. Harm var fæddur nwSti suðri og sól, i fögrrnn fjallahring, á Gilsbakka í Hvítár- siðu. Bærinn stendur í miðjum hlíðar- slakka Siðufjalls. 1 hlíðinni og við rætur hennar er fallegur skógur, með rjóðrum og angandi blómgresi. Umhverfið er bæði fagurt og stórbrotið. Þar hefur Hallmund- arhraun runnið, og er enn lítt gróið. Spöl- kom frá rennur Hvítá, straumþung, er hún hefur safnað saman mörgum ám úr hálendinu, norðan austan og sunnan. Þar ymur Barnafoss sitt sorgþrungna lag í þröngum gljúfmm yfir börnumun, sem þar fómst. Þama er vetrarríki allmikið; en þar er lika dásöm dýrð við stjömublik, og vafur- loga himins. Þá er sumardýrðin þar eigi minni. Hin tignu fjöll, hraunið, ilmandi björkin og lækjaniðurinn, jafnvel þar sem enginn lækur er þó sjáanlegur. En það skýrist fljótt, þegar komið er niður að Hvítá, þar sem hraunið spinnur silfurtæra bergvatnsþræði niður í kolmórauða jökul eðjuna. Pétur Nagnússon BANKASTJÓRI 10. jan. 1888 — D. 26. júní 1948. t Þama birtist sjónum manna fegurð og hreinleiki eigi síður en ógn og auðn. Inn til heiða er unnt að líta marga unaðssjón. Allt þetta fagra og stórbrotna umhverfi er hollur skóli hrifnæmri, hugsandi bamssál. I þessu umhverfi var Pétur Magnússon borinn og bamfæddur. Hann ér af góðu bergi brotinn. Ættir Magnúsar prófasts Andi'éssonar og konu hans, Sigríðar Pét ursdóttur Sivertsen frá Höfn, þarf ekki að rekja. Þar má segja, að kynborið sé í báðar ættir, traustleiki og hógværð, góðvild og gætni. Heimili þeirra hjóna var mótað af kristilegum anda, sem var leiðarljós og mælisnúra. Frá sjónarmiði séra Magnúsar varð menntunin að móta manngildið til þess að þjóðinni gæti famazt vel. Hann var nokkuð strangur og siðavandur, en stilltur og prúður. Frú Sigríður var mikil myndar- og mannkostakona, í mörgu lík manni sintun, en líka að ýmsu ólík. Þar var hjartahlýjan rik og skilningurinn á mannlegu eðli næmur. Ástúð og umhyggja AKRANES 19

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.