Akranes - 01.01.1959, Side 13

Akranes - 01.01.1959, Side 13
yður að muna það vel, að það er algjörlega á yðar ábyrgð sjálfs, hvort þér notið mín meðöl eða þau, sem þér eruð með. Ég held því ekki fram, að þér notið mín meðöl og vil helzt ráða yður til þess að nota hin. En á því berið þér ábyrgð, en ekki ég!“ Þetta sagði hann með þeirri einurð og alvöru sem honum var lagin, og Sigurjón játti því og virtist skilja það vel. Síðan gengum við heim til Sigurjóns og áður en við skildum, sagði ég við hann: „Hvað ætlið þér nú að gera? Mér virðist þér eiga úr miklum vanda að ráða. En munið, hvað Isólfur sagði við yður!“ Svo skildum við og kvöddumst. — Níu dögum síðar sé ég, að Sigurjón er kominn í bankann og var veikin þá farin að réna. Ég mundi þá i bili ekkert um afskipti mín af Sigurjóni og konu hans fyrri en um miðjan dag og segi þvi við Sigurjón: „Hvernig líður konunni yðar?“ „Henni líður vel“. Hugsaði ég þá, að þegar hann svaraði þessu þannig hefði hún dáið, og spurði með hluttekningu: „Jæja, dó hún?“ „Nei, hún lifir góðu 1 ifi!“ og var gleði- hreimur í svari hans. Vaknaði nú forvitni mín mjög, og ég spurði: „Hvað gerðuð þér, eftir að við skildum? Hvernig fóruð þér að með með- ölin? — Hvor þeirra notuðuð þér?“ Leysti nú Sigurjón úr spurningum mín- um á þessa leið: „Ég hefi aldrei komizt í meiri vanda en þá, er ég var að hugsa um það í and- dyri húss míns, hvor meðölin ég skyldi nota. Loks afréð ég að nota meðöl ísólfs. Ég átti að gefa konunni 3 dropa af hvoru glasi á hverjum 15 mínútum (það stóð á seðli Isólfs) og kl. var hálf-tólf, er ég byrjaði. Þessu hélt ég áfram til kl. t y2, enda átti ég þá að fækka inntökunum í 3 dropa á hverjum hálftima. Þegar kl. var orðin 2 og ég ætlaði að fara að gefa kon- unni inn, hrökk hún fram á rúmstokkinn og kastaði upp nærri kolsvörtum liroða, sem ég get ekki lýst, og lá henni þó við köfnun, svo mikið barst af þessu upp i háls hennar og munn og stóðu uppköstin yfir i rúmar 5 mínútur. Gaf ég henni þá inn, en rétt á eftir kom annað kast miklu minna og var þá blóðlitur á því sem uppúr henni kom. Síðan lagðist hún fyrir aftur og sofnaði, en það var nú „langi svefn- inn“ fannst mér, því að ég sá ekki að hún bærðist hið allra minnsta næstu 16 klukku- stundimar, — svo fast og vært svaf hún. — og eftir það var hún alhress, fór á fæt- ur eftir tvo daga, og hefir aldrei áður hraustari verið en síðan“. Þannig fór með þessa lækningu Isólfs, enda varð ég oft áðu r og siðar var við þvilikan árangur, þótt eigi vissi ég svo vel um þá, sem þennan. Sökum vitneskju minnar um góðan ár- angur af lækningmn Isólfs, einkum í spönskuveikinni, spurði ég hann i hverju yfirburðir hans væru fólgnir og hver væri munurinn á aðferðum læknanna og að- ferðum hans. Hann sagði: „Læknarnir nota, að því er ég bezt veit, einkum kamfórublöndm- og kælilyf, en það örvar hjartað til enn meira starfs, svo mikils, að menn eiga þvi erfiðara með að sofa, sem lengra líður og meiri lyf eru notuð af þessu tagi. Þegar vökutim- inn er orðinn athugaverður, menn að verða ærðir af svefnleysi, láta þeir sjúklinga fá sprautur, sem þeir ekki þola, sízt allir, og deyja að einum til tveim stundum liðn- um eftir innsprautunina, enda herða hin kælandi lyf óhroðann í lungunum. en mýkja hann hvorki né lina“. „En. hvaða lyf notar þú?“ spurði ég. „Engin kælandi lyf, nema þá í ítrustu neyð, því sótthitinn, þótt vondur sé, verð- ur að haldast óhindraður og „rasa út“, AKRANES 13

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.