Akranes - 01.01.1959, Page 26

Akranes - 01.01.1959, Page 26
lausir eru, geta mælt þá hljóðlega af munni fram, eða sungið lágt með. Reyni laglaust fólk að fylgjast með og raula sönglög i 2—3 ár, lærir það líka flest smám saman að syngja af sjálfu sér. Víða tíðkast sá ágæti siður, að söfnuðurinn fer með Faðir-vorið upphátt með prestinum, en hefur yfir aðrar bamir kórsins í hljóði með honum. Með þessu móti leggur hver safnaðarmeðlimur sinn eigin skerf til guðsþjónustunnar, líkt og hvert hljóð- færi gerir það í voldugri og glæsilegri sinfóniuhljómsveit. Mæti fáir aðrir en hljómsveitarstjórirm, kona hans og kon- sertmeistarinn, er ekki unnt að halda neina hljómleika. Jafnvel þó hljóðfæra- leikaramir mæti allir stundvíslega, verða hljómleikarnir lélegir ef flest hljóðfærin þegja. Safnaðarmeðlimimir og kirkjugestirair eiga ekki að vera bara áheyrendur í kirkj- unni. Hlutverk þeirra er að vera þátttak- endur í guðsþjónustunni. Það er sjálfur drottinn þeirra sem er áheyrandinn, sá eilífi og mikli andi, sem i öllu og alls staðar býr, einnig í kirkjunni. Hlutverk safnaðarnefndanna er að skipuleggja starfið af eldmóði og áhuga. Hvetja sem flesta til starfa við hin mörgu embætti og störf sem söfnuðurinn hefur upp á að bjóða. Með því mótast traustur og trygglyndur kjami kirkjm-ækins fólks, sem hleður utan á sig stórum söfnuðum. Auk 5—9 manna safnaðamefndar, tveggja meðhjálpara og 20—30 manna kirkjukórs, má skipa stjómir bræðra og systrafélaga, unglinga og barnadeilda. Ekki veitir af 4—6 mönnum við dyrnar til þess að bjóða kirkjufólkið velkomið og vísa þvi til sætis. Með þessu móti er hægt að koma upp 50—60 manna öflugu starfs- hði við kirkjuna. Sé allmargt af þessu fólki gift, eins og vænta má, hvetur það að sjálfsögðu a. m. k. maka sina og tjöl- 26 skyldu til þess að mæta reglulega til kirkju. Annars er það eitt aðalhlutverk safn- aðarfólksins að minna sífellt á kirkjuna, örfa og hvetja fólk án afláts til þess að sækja hana vel. Þar sem kirkjurækni er í góðu lagi og í hávegum höfð, er ein- mitt notuð þessi aðferð. Kirkjumar þurfa að keppa við svo margar nútíma skemmt- anir með öllum auglýsingamætti þeirra, og henni veitir ekki af að nota öfluga aug- lýsinga og litbreiðslustarfsemi, enda er það bæði rétt og skylt, þar eð Kristur sjálfur ætlaðist beinlínis til þess. Gott safnaðarstarf og safnaðarhf verður ein bezta lyftistöng fyrir prestana sjálfa og verður þeim hvatning til þess að leggja enn meiri rækt við starf þeirra og við guðfræðina með framhaldsnámi, samn- ingi doktorsritgerðar í guðfræði og rann- sóknum þar að lútandi. Kristindómurinn þarfnast ævinlega út- skýringa, íhygli og nákvæmrar rnnhugs- unar. Hins vegar stendur hann einn og óstuddur ofar öllinn fræðigreinum, vis- indarannsóknum og kennisetningum. Hin eilífi fagnaðarboðskapur og sannleikur- inn tun náðina og kærleikann til guðs og manna er siður en svo orðinn úreltur vegna nútíma sálarfræði, kjamorkuvis- inda eða aukinnar þekkingar á öðrum sviðum. Hann hefur staðið óbreyttur í gegnum aldaraðirnar, og mun standast öll aldahvörf, vegna eilífðareðlis síns. Hefur hann þá fengið nokkm áorkað spyrja menn er þeir líta í kiúngum sig, og sjá víða merki styrjalda, glæpa, drykkju- skapar og þrælahalds. Er maðurinn ekki skepna, hefur hann ekki alltaf verið það, og mun hann ekki alltaf verða það? Hafa hin æðstu trúarbrögð og þá fyrst og fremst kristin trú, nokkm- áhrif á dýrseðlið í manninum? Það tekur langan tima að skapa mamikyn, sem samanstendur af mannúðlegum mömium. Þróun dýrateg- A K R A N E S

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.