Akranes - 01.01.1959, Page 34
Nokkrar stökur tileinkaðar mmningu
BJÖRNS HANNESSONAR
á Litlateig
Ættartengslin traustu rofna
tíðum hér í heim.
Gustur fer um gamla stofna
greinar falla af þeim.
Ættargróður átthaganna
okkur saman batt.
Síðast ykkar systkinamm
sex þú hefur kvatt.
Bemsku vorið ykkar unga
ofið kuldaserk.
Leið við basl, sem lífsins þunga
lagði í átök sterk.
Æskudaga kröppu kjörin
kviða mörgum bjó.
Fundust lengi aumu örin
eftir þrönga skó.
Þessi kynslóö reynslu og raka,
rýmrí stakk sér óf,
þar sem margur mátti taka
mannlifs-rauna próf.
Ot á hafið hugur bendir
heilsar kappa lið,
þú með 'öðrum þilskip sendir
þangað fyrst á ,mið.
Vélin, hér við höfin y/.tu
hagsæld jók og trú.
Mótorbátinn með þeim fyrstu
á miðin sendir þú.
Öskin heita byggðum breyta
bæta þjóðar hag.
Orku neyta lengra leita
lifa nýjan dag.
Það var löngun þín og hinna
þráin ung og hlý,
mega skilja, skapa og vinna
skreyta löndin ný.
34
AKRANES