Akranes - 01.01.1959, Page 57
★
★
★
★
★
„Á yztu nöf“: — Regína
ÞórSardóttir, Bryndís Pét-
ursdóttir og Baldvin Hall-
dórsson.
hlutverk frúarinnar. Hún ber mikla um-
hyggju fyrir börnunum sínum og elur þau
upp í því eftirlæti, að sonurinn verður
pörupiltur og dóttirin nálgast viðundur.
Hún gefst þó ekki upp við uppeldisstörfin,
en reynir að ala upp manninn sinn, þegar
hann kemur heim úr vinnunni, og Sabinu
vinnukonu allan daginn. Allt er þetta þó
gert með svo mikilli hlýju, að hægt er að
sætta sig við það og þess vegna verður
aldrei úr því að Antróbus yfirgefi hana.
Henni er heldur ekki alls varnað í menn-
ingarmálum, t. d. hefur hún firndið upp
kjólfaldinn og eitthvað fleira merkilegt.
Loks sýnir hún í stríðinu, að hún bugast
ekki í erfiðleikunum, en er gegnum þunnt
og þykkt umhyggjusöm eiginkona og móð-
ir. Reginu Þórðardóttur lætur yfirleitt vel
að túlka tilfinningar þeirra kvenna, sem
eitthvað er við, en sérstaklega lætur henni
vel að hugga sina nánustu. Þetta sýndi
hún ef til vill bezt í „Sölumaður deyr“.
AKRANES
57