Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1876, Page 5
Ekkja lángafa sonarsonar, Kristjáns konúngs VIII.:
Kkkjudrottníng Carolina Ainalia, dóttir hertoga af Slesvík-
Holstein-Suðurborg-Augustenborg, fædd 28. Juni 1796, gipt
22- Mai 1815, varð ekkja 20. Januar 1848.
Dastur lángafa sonarsonar, Friðreks konúngs VI.:
') Carolina, fædd 28. Oktobr. 1793, S'Pt erfðaprinsi Friðreki
Ferdinand 1. August 1829, ekkja 29. Juni 1863.
2) Vilhelmina Maria, fædd 18. Januar 1808, gipt 19. Mai 1838
Karli hertoga af Slesvík-Holstein-Suðurborg-Gliicksborg,
feddum 3o.Septembr. 1813, tilerfða komnum 17. Februar 1831.
I þessu almanaki er hver dagur talinn frá miðnætti til mið-
oættis, svo að þær 12 stundir, sem eru frá miðnætti til hádegis á
óegi hverjum, eru taldar „fyrir miðdag (f. m.)“, en hinar 12, frá
hádegi til jafnlengdar, eða til miðnættis aptur, eru taldar „eptir
miðdag (e. m.)“. Sérhver klukkustund er hér sett eptir midííma,
sem almennt er fylgt manna á milli, og öll sigurverk eru stillt
ePtir. En þareð þessi mælíng tímans er á flestum árstímum
nokkuð frábreytt því, sem sólspjaldið (sólskífan) vísar til, eptir
Saungu sólarinnar, þá verður hver sá, sem stilla vill sigurverk
eptir sólspjaldinu, að taka eptir þeim mismun, sem er á milli
sóltíma og miðtíma, og gjöra við honum þegar hann stillir
sigurverkið. Þetta sýnir sú „Tafla um mismun á sóltíma og
tniðtíma", sem fylgir næst á eptir almanakinu. Þar má sjá við
t- Jan. 12 4', við 11. Febr. 12 14' o. s. frv.; það merkir, að
miðtími er á þessum dögum 4 mínútum (eða 14 mínútum) á
nndan sóltíma, eða, að sigurverk sýna 4 (eða 14) mínútur yfir
hádegi, þegar sólspjaldið sýnir hádegi sjálft (kl. 12); við 13.
April og víðar stendur 12 o', það merkir, að þá koma saman
ntiðtími og sóltími; við 1. Novbr. stendur 11 44', það merkir,
þá sýna sigurverk 11 stundir og 44 mínútur þegar sól-
spjaldið sýnir hádegi, eða að miðtími er þá 16 mínútum á
ePtir sóltíma, o. s. frv.