Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1876, Blaðsíða 26
ÚR TILSKIPUN 3. FEBRUAR 1836.
VII. atr. vm almariók:
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sem Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt tii að gefa út almanök,
annaðhvort með því að flytja til íslands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831); þau almanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar
á ofan J/4 rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helmíng sekta-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en
annar helmíngur gengur til stjörnuturnsins í Kaup-
mannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var
talið.
3. gr, Öll mál, sem rísa af að einkaleyfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almanak þetta kostar óinnfest 10 aura, en innfest 11
aura, allstaðar á íslandi og í Danmörku; en Gyldendals
bókaverzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er
skyld til að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest g aura,
þeim sem kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum
er og heimilt að skila aptur óseldum almanökum, ef það er
gjört innan árs loka 1875; verður þeim þá borgað andvirði
þeirra sem ósködduð eru, en þó svo, að hin innfestu verða
borguð sem óinnfest; skyldir eru þeir og að sýna reiknínga
bókaverzlunarinnar, ef krafist verður.