Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1876, Blaðsíða 57
svo se, að stjórnari heimsins, sem hver maður á að biðja
blessunar á vinnu sinni, hafi í vísdómi sínum ætlað annað.
FLJÓT OG AUÐVELD AÐFERÐ
að salta og reykja.
lak saltpétur og lát bráðna í ferfalt meira vatni (i : 4),
svo það verði mátulega salt; sjóð síðan kjötið seint og hægt
j.re.*sum þar til allt vatnið er gufað upp; hengdu síðan
* sterkan reyk um einn sólarhrfng, og muntu finna
ve 3 ^ ver^ur eins þétt, rautt og smekkgott, eins og bezt má
Sú er önnur aðferðin, sem hlíta má þegar ekki er mikið kjöt
Jynr hendi, en maður vill fá sér gott saltkjöt á stuttum tíma.
J ak 16 lóð af matarsalti, V2 lóð af saltpétri og 1 Ióð af sykri,
myl þetta og blanda vel saman, lát síðan kjötið þar á og snú
pví á ymsa vegu og þjappa því, þar til saltblandið loðir á því
alla vega. Þá er kjötið vafið inn í lérept, sem áður hefir
yerið dýft í logheitt vatn og sfðan þurkað; þar eptir er höggull-
mn lagður í djúpt fat eða stóra tarínu, með þéttu loki. Þetta
ef aðal-atriðið, sem mest rfður á, að vefja f léreptið. Eptir
e>tt dægur fer að sjást verkun á kjötinu. Kjötstykki sem vóg
b pund, og svo hafði verið farið með sem hér var sagt, var
soðið f vatni eptir 6 daga, og var þá í alla staði fullsaltað í
bezta legi.
UM DOÐASÓTT í KÚM OG RÁÐ VIÐ HENNI.
Doðasótt í kúm kemur opt og tíðum fram hjábúmönnum
vorum, og gjörir mikinn skaða; hún drepur stundum fyrir manni
pá eir.u snemmbæruna sem hann á, svo hann stendur uppi
°Jargþrota á eptir.
Sýki þessi kemur almennast fram í tveim myndum. Önnur
tegund hennar háttar sér svo, að hún kemur í ljós tveimur eða
þremur dögum eptir burðinn, og stundum ekki fyr en eptir
einar tvær vikur. Hún kemur í fyrstu þannig í ljós, að kýrin
hefir ekki lyst á að eta fóður sitt, einsog hún er vön, hún
nættir að jórtra, verður andstutt, og lffæðin slær hart og títt;
kýrin verður stundum mjög óróleg og svosem hálf-rugluð,
stundum aptur deyfðarleg og magnlaus að sjá; saurindin eru
hörð, stundum er stálmi og bólga f júfrinu, svo mjólkin næst
ekki, stundum er júfrið lint einsog slytti. Sýki þessi varir sjald-
an lengur en fáa daga, og endar optast með því, að kýrin
deyr. — Við sjúkdómi þessum er bezt að taka fyrst kúnni blóð
á hálsinum, og láta blæða 2—3 potta, gefa henni lítið að eta,
og hræra stórblandað rúgmjöl saman við vatnið, sem hún fær að
drekka. Jafnframt skal gefa henni glábersalt, 12—16 lóð, og
saltpétur 1—2 lóð; skal leysa þetta upp í einni mörk af vatni.
Slíkan skamt skal gefa þrisvar á tveim dægrum. Þess skal ná-
(55)