Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1876, Page 26

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1876, Page 26
ÚR TILSKIPUN 3. FEBRUAR 1836. VII. atr. vm almariók: 1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sem Kaup- mannahafnar háskóla er veitt tii að gefa út almanök, annaðhvort með því að flytja til íslands eða selja útlend almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20 til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831); þau almanök eru og upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar á ofan J/4 rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helmíng sekta- fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá, sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en annar helmíngur gengur til stjörnuturnsins í Kaup- mannahöfn. 2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var talið. 3. gr, Öll mál, sem rísa af að einkaleyfi þetta er skert, skal fara með sem opinber lögreglumál. Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta. Almanak þetta kostar óinnfest 10 aura, en innfest 11 aura, allstaðar á íslandi og í Danmörku; en Gyldendals bókaverzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest g aura, þeim sem kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt að skila aptur óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs loka 1875; verður þeim þá borgað andvirði þeirra sem ósködduð eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir eru þeir og að sýna reiknínga bókaverzlunarinnar, ef krafist verður.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.