Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1876, Side 61
3- Handr. Árna Magn. 687. B. í 4to.
Hver er sá hinn lági, j er hann er lítill fyrir sér
og hefir hann fjóra fætur,
tvo lifandi | og tvo dauða
n>jög er það kynlegt knapaldr.
Á tveim hann stendr, | en hann skal aðra tvo
í miHum herða hafa;
Kvenna kjöt | er honum á kropp borið,
nnnst ei honum þó manns hold 1 maga.
Ráðníng gátnanna:
!• Mannsæfin. 2. Hugurinn. 3. Fótaskör kvenna.
Ráð til að taka ryð af stáli og járni.
Ef að ryðbletttirnir eru ekki orðnir of gamlir, þá nægir
uo ydda góðan blyant, og nudda ryðblettinn af með honum.
Sé blettimir stórir, þá tekur maður digran blýant, og nuddar
houum dyggilega yfir blettinn. Ryðbletturinn lætur þá undan
og eyðist, og á þeim stað kemur ekki bráðlega ryðblettur
aptur. Sé ryðblettirnir gamlir, þá er farið eins að, bustaður
slðan bletturinn með hreinum busta og þurum, og þar á
cptir nuddaður aptur á ný með blýanti. _ _
Önnur aðferð er sú, að maður hitar á heitum kakalofm í
lítilli krukku 1 lóð af terpentínolíu og 1 lóð af hvítu vaxi;
maður hrærir í með litlum tréstaut. Þegar þetta kólnar, verður
Það hvítt að sjá, líkt og salve eða mjúkur áburöur; það skal
bera á þá hluti, sem maður vill verja ryði, og nudda vel
mni, en siðan skal fægja þá með þurum léreptsklút. burð
þenna getur maður einnig haft á vandaðar og spegilfágaðar
nirzlur úr tré, og verða þær við það sem glæsilegastar.
RÁÐ TIL AÐ GJÖRA LEÐUR VATNSHELT.
Leður verður gjört vatnshelt með því móti, að maður tekur
2 lóð af smásöxuðu strokleðri (gummi elasticuni), lætur það í
steindan pott og kindir undir kolaeld mjög lítinn; þar eptir
lætur maður litla spónfylli af línolíu-kvoðu (fernis) sa.man við,
oghrærirvelsaman. Á hverjum fimm mínútum bætir maður
viðlíka miklu i af gljákvoðunni (fernisnum) en þó aldrei
svo miklu, að fari fram úr 6 lóðum af henni.
. Þá skal bland þetta vera orðið jafnt rennanda mauk.
Þegar svo er komið, er potturinn tekinn af glóðunum, og
hrært saman við maukið 1 lóð af fiskilýsi og jafnt því af
tetpentinolíu. Þegar þetta er borið á leður, verður það
vatnshelt og helzt mjúkt eins og lúnga.
(59)