Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1896, Page 26

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1896, Page 26
ÚR TILSKÍPUN 3. FEBRLIAR 1830. vii. atr. um almanök: 1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sem Kaup- inannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök, annaðhvort með þvi að flytja til Islands eða selja útlend almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20 til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831),- þau almanök eru og upptæk, sem fmnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar á ofan l rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helming sekta- fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá, sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en annar helmingur gengur til stjörnuturnsins í Kaup- mannahöfn. 2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæinlega, að enginn skerði þelta einkaleyfi háskólans, sem nú var talið. 3. gr. Öll mál, sem rísa af að eínkaleyfi þetta er skert, skal fara með sem opinber lögreglumál. Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta. Almanak þetta kostar óinnfest 10 aura, en innfest 11 aura, allstaðar á íslandi og í Danmörku; en Gyldendala bóka- verzlan í Kaupmannahðfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt að skila aptur óseldum almanökum, ef það er gjðrt innan árs loka 1896; verður þeim þá borgað andvirði þeirra, scm ósködduð eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir eru þeir og að sýna reikninga bókaverzlunarinnar, ef krafizt verður.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.