Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1896, Síða 26
ÚR TILSKÍPUN 3. FEBRLIAR 1830.
vii. atr. um almanök:
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sem Kaup-
inannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök,
annaðhvort með þvi að flytja til Islands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831),- þau almanök eru og
upptæk, sem fmnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar
á ofan l rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helming sekta-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en
annar helmingur gengur til stjörnuturnsins í Kaup-
mannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæinlega, að
enginn skerði þelta einkaleyfi háskólans, sem nú var
talið.
3. gr. Öll mál, sem rísa af að eínkaleyfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almanak þetta kostar óinnfest 10 aura, en innfest 11
aura, allstaðar á íslandi og í Danmörku; en Gyldendala bóka-
verzlan í Kaupmannahðfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til
að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem
kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt
að skila aptur óseldum almanökum, ef það er gjðrt innan árs
loka 1896; verður þeim þá borgað andvirði þeirra, scm ósködduð
eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir
eru þeir og að sýna reikninga bókaverzlunarinnar, ef krafizt verður.