Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1896, Síða 31
Jolin Bright.
f sgar Bright dó, 27. marz 1889, sagði Gladstone
gamli um hann, að hans iíka heí'ði hann aldrei þekkt
á sinni löngu æfi.
Þeir verða opt nefndir saman í sögunni Bright og
Gladstone, forkólfarnir frjálslyndu, viuir og samverka-
menn lengstan hluta æíinnar, jafnaldrar að kalla,
jafnsnjallir taldir í ræðustólnum, jafnelskaðir af fylg-
ismönnum og jafnvirtir af mótstöðumönnum, sem prýði
enskrar þjóðar, þrátt fyrir andstæða stjórnmálastefnu
og pólitíska óvild.
Sjerstaklega hafa þeir verið bornir saman sem
framúrskarandi mælskumenn á enska þinginu, og eru
þar þó margir góðir. Hiklaust eru þeir taldir fremstir
i þeirri grein, þessa öldina, að minnsta kösti síðari
hluta hennar, síðan 0 Connell leið. Yíirburðir Glad-
stones voru þeir, að hann lagði á allt gjörva hönd,
hann var aistaðar heima, hann lagði til allra mála,
°S hann gat talað í sama málinu snjallt og rækilega,
fimlega og fastlega, optar sama kvöldið og hvern
daginn eptir annan. Hann var alveg óþrotlegur í
nýjum röksemdum með nýju sniði, eptir því sem við
átti, og sennilega heflr enginn enskur þinggarpur haft
jafnmarga kosti sameinaða. Mælska Brights var með
öðrum hætti. Hann var í áhlaupinu enda snjallari en
Gladstone, hann hreif' menn enn meira með sjer.
Hann var geðmeiri, heitari, beizkari, gamansamari,
fylgdi laginu fastar, en hann haf'öi hvergi nærri vopn-
fimi Gladstones, nje vopnagnótt til sóknar og varnar.
Mælska Brigths átti bezt við á stórum mannfundum
undÍL- beru lopti, en Gladstone varð drjúgari í þing-
salnum með nákvæmni sinni og gjörhygli. »Silfurrödd«
Giadstones er viðbrugðið, en þó er sagt að Bright hafl
haft enn skærri streng á raddfæri sínu, er hann komst
i hita. Disraeli var annar fimastur maður og vopn-
djarfastur á þinginu en Gladstone, en þó hafði Disra-
eli eigi stundum við Bright. Eitt sinn þegar Disra-
eli sat að völdum og kom með rjettarbótar-frumvarp,
(25)