Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1896, Side 32
sem Bright fannst ekki vera annað en kák, hafði Bright
þau orð nm Disraeli, sem lengi voru í minnum höið,
að »hann væri eins og skottuiæknir, sem gæfi f'ólkinu
inn piilur í jarðskálfta«.
Hin mikla mæiskugáfa Brights var ein fyrir sig
nóg til þess, að gjöra hann þjóðmerkan mann, en
hans er þó mest að minnast fyrir það, hvernig hann
varði gáfu sinni.
John Bright var fæddur 16. nóvember 1811 í
þorpinu Greenbank á Norður-Englandi, skammt frá
Rochdale, er það iðnaðarbær eigi all-lítill, innar og
austar en Manchester og þó skammt í miili, og er bær
þessi, þótt eigi sje stór, orðinn heimsfrægur af vefur-
unum fátæku, sem árið 1844 hófu kauptjeíagsskapinn
til skuldlausrar verzlunar með 15 aura framlagi á
viku. Þeir fjelagar kölluðu sig »píónera« og voru og
sannnefndir »brautryðjendur« eöa forkólfar nýrrar
stefnu. Það var og kenningarnafn Brights á þingi,
»píónerinn frá Eochdale«.
Hann var lika allt af í fylkingarbrjósti á frelsis-
brautinni. Það er einkennilegt hvernig hann í svo
mörgum málum ryður Gladstone braut. Bright kveð-
ur upp frelsis og jafnrjettishugmyndina. Gladstone
hugsar sig um og hikar í bili, en kemur svo á eptir
og heldur málinu fram til sigurs. Bright er ailt af
við því búinn að standa einn uppi; þegar hann hefir
bina eigin samvizku með sjer, mega aliir veraámóti;
Gladstone hefir í mörg horn að líta sem fiokksforingi.
iins dæmi mætti nefna til þess, svo sem jafnrjetti
Gyðinga, afnám ríkiskirkjunnar írsku, og enda sjálft
irska málið, þótt seinna skildust leiðir.
Friður og frelsi var hið pólitíska prógramm Brights
alla hans æfi. Hann var hinn öflugasti og atkvæða-
mesti postuli alheimsfriðarins á sinni tíð. Hann mat
lltils lieimsveldi Englands yfir höfum og löndum, með
auði gulls og örskreiðum bryndrekum, móts við rjettar-
og hagsbætur almennings heima. Bakaði það honum
ærnar óvinsæidir með köfium, er hernaðar ofmetnað-
urinn gagntók þjóðina. Hann hafði í 12 ár verið
þingmaður fyrir Manchester, elskaður og virtur sem
mest mátti verða, en er »heiður Englands« ki-afðist
stríðs á hendur Kínverjum árið 1857 og Bright mót-
(26)
L