Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1896, Síða 42
stofnanir fyrir ungt fólk, sem ratað hefir á glapstigu,
telst svo til, að hæli þan, sem rót sína eiga að rekja
til hans, taki um 50,000 persónur. Shaftesbury var
borið á brýn, að hann hugsaði ekkert um verkalýð-
inn á landinu, og var nokkuð til í því, enda var verk-
sviðið nóg samt. Þó vannst honum tími til að sinna
sveitarstjórn heima í þorpinu, sem frá fornu fari hafði
verið eign ættar hans. Þar reis upp fyrirmyndarbær,
þar sem hver húsráðandi átti dálítið erfðafestuiand til
afnota. Þorpsbúar voru 8000 við fráfall Shaftesbury
og var í frásögur fært, að enginn væri þar veitinga-
maður nje okurkarl, því hvorugum var þar vært eptir
lögum lávarðsins.
Flestir, sem um langt skeið haf'a varið kröptum
sínum til umfangsmikilla mannfjelagsbóta, sjá svo
margt ófagurt og rejma svo margt misjafnt, að þeir
verða fegnir að taka sjer hvíldina sjálfir, eða, fá hana
er dauðinn íer að. Shaftesbury leit öðrum augum á
það. Þegar komið var á níræðisaldurinn og heilsan
var þrotin, kvartaði hann opt undan því við vini sina
að þurfa að fara burt frá svo vondum heimi, honum
fannst hann eiga svo undurmikið ógjört.
Shaftesbury dó 1. október 1885, og vantaði þá
missiri á að vera hálfníræður. Hin þakkláta fóstur-
jörð kaus honum legstað að Westminster kirkju við
hlið iandsins ágætustu þjóðmæringa, en sjálfur hafði
hann kosið sjer gröf við heimakirkju sína og þar hvíl-
ir hann. Þ. B.
Nikulás II., keisari Eussa, er 27 ára garnall, fædd-
ur í maínaán. 1868, Hann kom til ríkis síöastiibið haust,
þegar faðir hans, Alexander III., ljezt, 1. nóv. Menn hugðu
gott til ríkisstjórnar hans, þegar hann kom til valda, með
því að bæði var það alkunnugt, að hann var vel að sjer í
ýmsum greinum, og svo ljek jafnframt orð á því, aöhann
mundi vera maður frjálslyndur og hafa óbeit á kúgun
þeirri er Rússar urðu að mörgu leyti að sæta undir stjórn
föður hans. Enn er hann lítt reyndur, eins og að líkind-
(36)