Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1896, Page 45
varð hann 1881, en utanvíkismálaráðherra í næstu stjóm
Grladstones, 1886. Fjekk haun þá mjög mikið loí. bæði
utaniands og innan, fyrir þá staðfestu, er hann sýndi í
órðugum deilum, er risu út úr stríðinu milli Serba og.
Búigara. 1888 varð hann doktor í heimspeki við háskól-
ann í Cambridge. Sama ár komst hann inn í borgarstjóra
Lundúna, varð formaður hennar, og fjekk hjá öllum flokk-
um manna hið mesta lof fyrir það, hvernig hann hefði
löyst það vandaverk af hendi. Jpegar Giaðstone náði
völdum síðast, varð Rosebery utanríkisráðherra af nýju,
°g þegar Gladstone sagði af sjer stjórnarformennskunni í
marzmánuði í íyrra, varð llosebery eptirmaður hans.
Mælt er, að Rosebery hafi í æsku óskað sjer þriggja óska:
að verða stjórnarformaður Stórbretalands, fá auðugustu
honunnar á Englandi og eignast hest, er ynni sigur í
Derby-veðreiðunum. Allt þetta hefur honum tekízt. Ár-
iö 1878 kvæntist hann Hönnu, einkadóttnr Meyers de
Bothshilds baróns, og fjokk með henni auð fjár, en hún
yezt haustið 1890. í fyrra sutnar fjekk hryssa, er hann
átti, fyrstu verðlaun á Derby-veðhlaupunum.
Felix Faure varð foseti Frakklands, þegar Casimir
Bérier sagði at sjer í janúarmánuði i vetur, og er 53 ára
gatnall. TJtan Frakklands var hann lítt þekktur, þegar
hann varð forseti, nema hvað sagt er, að hann hafi verið
í allmikilli kynning við hefðarfólk á Englandi, enda sam-
ið sig allmikið að siðum þess. Foreldrar hans voru fá-
tffikir, og lærði hann í æsku sútaraiðn og rak snemma
shinnaverzlun í Havre. Græddist honum þar brátt fje-
mikið og fjekk hann mikið álit á sjer manna á meðal.
Hann varð þingmaður 1881, en ráðherra flotamálanna var
tann, þegar Casimir-Périer sleppti völdunum. Hann er
talinn gætinn maður og vitur.
Árbök íslands 1894.
a. Ymsir atburðir.
‘Z.Jan. Byrjar nýtt blað í Rvík, j>Garðar«. Ritstjóri::
•fónas Jónsson. Arg. 12 bl.
(39)