Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1896, Qupperneq 75
haldin 1852 í Nýju Jórvík (New-York) i Bandaríkjunum.
1855 var heimssýning haldin í Parísarborg; sýningarsvið-
ið þar var 48 vallardagsláttur að stærð; 24,000 sýnendur
og 5 millíónir skoðendur. 1862 var aptur haldin heims-
sýning í Lundúnaborg; sýningarsvæðið var nálægt 20 dag-
siáttur. b>á sýningu heimsóttu yíir 6 miiliónir manns.
1868 var heimssýning annað sinn haidin í París, sýning-
arsviðið var 13'/2 dagslátta, 52,000 sýnendur og 10 millión-
ir skoðendur. 1873 var heimssýning haldin í Píladeltíu í
Bandaríkjunum; sýningarsviðið var 342 vallardagsláttur og
10 millíónir skoðendur. Næsta heimssýning var haldin
þriðja sinn í Parísarborg 1878; sýningarsviðið var 65 valt-
ardagsláttur og skoðondur 16 millíónir. 1889 var íj'órða
sinn sýning haldin í París, sýningarsviðið var 208 dag-
sláttur að stærð og 30 millíónir skoðendur. 1893 var
heimssýning haldin í Chicago, stærri og veglegri en nokk-
ur sýning áður; sýningarsviðið var þar 900 vallardag-
sláttur.
* *
Lóð sú, sem p isthúsið í Chicago nú á og stendur á,
var keypt í'vrir 65 árum á 1900 kr., nú er hún 19 millíóna
króna virði.
* *
*
Hlutabrjef þau í Suez-skurðinum, sem enska ríkið keypti
1875 tyrir 75 millíónir króna, eru nú orðin 326 miliíóna
króna virði.
* *
*
_ Verðmunur á gulli og silfri eptir þyngd var í Banda-
ríkjunum árið 1872 1 af gulli á móti 15,63 af siifri; 1882
1 á móti 18,19; 1892 1 á móti 23,73 og 1893 1 móti 29,53.
Silfur heíur þannig á 21 ári íailið í verði nær því um
helming.
* *
Eins og kunnugt er býr silkiormurinn til silkið, en
mennirnir ala hann. Hve iðin þessi litlu kvikindi eru,
sjest af því, að árið 1880 nam óunnið silki í Bandaríkjun-
um 130 milj. krónum og 1890 250 milj.; 1880 hötðu 31,000
manns og Í890 51,000 atvinnu við að vinna úr þessu silki.
$ *
*
A Indlandi eru. 211 nnljónir manna Brahmatrúar, 7 milj-
ónir Buddatrúar, 57 miljóuir Múhamedstrúar, 90,000 fylgja
kenningu Sóróasters og 7 miljónir fylgja meira heiðnum
trúarskoðunum.
* *
*
Verð á sömu matvörutegund er mjög margvíslegt eptir
því, hver staðurinn er; þannig kostar að meðaltali 1 pund
•af uxakjöti 60 aura í Vínarborg, 52 a. í Prag, 64 aura í
(69)