Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 76
Rómaborg og Buddápest, og 90 til 120 aura í Parísarborg.
1 pund at' hveitimjöii kostar 9 aura í Buddapest, 15 aura í
Berlín og 18, aura í París.
* *
*
Svo telst til, að hveitiuppskeran i heiminum sje árlega
827‘/2 miljón tunnur transkar (hektolitrar), j)ar af fram-
leiða Bandarikin 145 milj., llússland ,121 milj., Indland
100 milj., Prakkland 115 milj., Ungverjaland 52 milj.,
Italía 44 milj., Þýzkaland 33 milj , Spánn 28 milj., Bret-
land 20 milj. og Austurríki 16 milj.
* *
*
Auk þess, sem löndin sjálf framleiða af hveiti er innflutt
og eytt í Bretlandi 67 miij. tunnur franskar (hektolitrar),
á Frakklandi 17 milj., í Austurríki 14 milj., í Þýzkalandi
9 ntilj, Beigíu 8^/2 milj., á Italíu 8 milj. og á Sviss á1/^
milj. Aptur á móti flyzt út frá Bandankjunum 36 milj.
tunnur tr. at hveiti, frá Bússlandi viðlíka, frá Ungverja-
landi 16 milj , Indlaudi 15 miij., Rúmeníu 12 milj. og frá
Argentína 9 milj. Tr. G.
Skrítl ur.
Hann: Hvernig getur yður komið til hugar, að jeg
hafi sagt að þjer væruð heimsk; jeg sem ætíð hef
verið sá eini, sem borið het á móti því.
* *
*
Hershöfðingi: Jeg er hissa að sjá yður, kæra frú, á
gangi í dag, og ekki nema 5 dagar síðan litli sonurinn
yðar fæddist. Jeg hef nú verið í 5 stórorusturo og ekki
iátið allt fyrir brjósti brenna, en þetta vildi jeg ekki leika
eptir yður, hvað sem í boði væri.
* * *
Konan: Maðurinn minn er sannarleg fyrirmynd ann-
ara karlmanna; það er varla sá löstur til, sem hann hef-
ur ekki vanið sig af.
* * *
C. Geizkow var eitt sinn í leik dæmdur til að segja
ungri stúlku einhver móðgunarorð, en þó skyldi hann
jafnframt gera bragarbót. Hann fullnægði dómnum þeg-
ar og mælti: «Jeg vildi óska þess að íjandinn ætti yður,
— — og að jeg væri tjandinns.
* * *
Englendingurinn: Hvað heitir hundurinn þinn ?
Skotinn: Jeg hef ekki gefið honum nafn ennþá.
Englendingurinn: Jeg skal segja þjer hvað hann á
að heita; láttu hann þá heita Glad. stone.
Skotinn: Nei, það væri skömm fyrir Gladstone.
Engl.: Láttu hann þá heita Disraeli.
(70)