Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Page 6

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Page 6
þá. skulu sigurverk syna 11 stundir og 44 mínútur, þegar sál- spjaldið synir hádegi, o. s. frv í þriðja dálki or töluröð, sem sýnir hvern tíma og mínútn tungl er í hádegisstað á hverjum degi; þar af má marka sjávat- föll, flóð og íjörur. í yzta dálki til hægri handar stendur hifl forna íslenzka tímatal; eptir því er árinu skipt í 12 mánuði þrítugnætta og 4 daga um- fram, sem ávallt skulu fylgja þriðja mánuði sumars; í því er aukið viku 5. eða 6. hvert ár f nýja stfl; það heitir sumarauki eða lagníngarvika. Arið 1900 er sunnudags bókstafur: G. — Gyllinilal: 1■ Árið 1900 er hið síðasta ár hinnar 19. aldar, sem endar 31. December árið 1900. Milli jóla og langafðstu eru 8 vikur og 6 dagar, Lengstur dagur í Reykjavík 20 st. 56 m., skemmstur3st. 58 m. Mvkkvar 1900. 1. Sólmyrkvi 28. Maí, sjest á íslandi. 1 Reykjavík stendur hann yfir frá kl. 12.5S' e. m. til 2.54' e. m. og er mestur kl. 1.54' e. m.; er þá myrkvi yfir neðra hluta sdlhvelsins og nær yfir helminginn af þvermæli þess. Sje miðað við Reykjavíkurklukku, eru stundatakmörk myrkvans hin sömu um allt ísland, svo að aðeins munar fám mínútum. Myrkvi þessi sjest um alla Evrdpu, í Norðurafríku og í Norður- og Miðameríku, og er almyrkvi í mjóu belti, sem liggur yfir syðsta hlutann af Norðurameríku, Pyreneaskagaun og nyrzta hlutann af Afríku. 2. Tunglmyrkvi 13. Júní, sjest ekki á íslandi, enda nær og sá myrkvi ekki nema yfir lj1000 hluta af þvermæli tunglhvelsins. 3. Sdlmyrkvi 22. Nóvember, sjest ekki á Islandi, en sjest um mikinn hluta Suðurafríku og Ástralíu. Hann verður hringmynd- aður í mjdu belti, sem liggur yfir Suðurafríku og norðurhluta Nýjahollands.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.