Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 45
örlög og ævikjör Indiana, áður en þessi maður kom til sög-
unnar, því menningu þeirra og frelsun frá eyðileggingu og
dauða hefir hann helgað líf sitt og krafta, og það með
frábærum árangri.
Það er löng og sorgleg saga, hvernig hvítir menn hafa
farið með hina rauðu frumhyggjendur Yesturheims, Iudí-
anana. Það má segja, að frá þvi að Vesturheimur tók að
hyggjast hvitum mönnum hafi þeir á allan hátt útrýmt
Indiönum; þeir hafa verið flæmdir stað úr stað og oft ekki
verið álitnir rétthærri en óarga dýr. Að eðlisfari eru Indí-
anar hefnigjarnir, grimmir og harðfengir, og hafa þvi einn-
ig leikið hvita menn sárt, þegar þeir hafa komist i færi við
þá. Ar frá ári óx hatrið og tortrygnin á báðar hliðar, og
hvitir menn sögðu, að það væri margsýnt, að ómögulegt
væri að siða Indiana. og engin ráð til þess, að tryggja líf
manna og eignir fyrir árásuin þeirra, önnur en að útrýma
þeim gjörsamlega. Fyrir rúmum tuttugu árum var enginn
er kvæði þá undan þessum dauðadóm heillar þjóðar, sem
var margfalt fjölmennari en þeir sjálfir og margfalt betur
búin að öllum vopnum, andlegum og líkamlegum, og
kvaðst hyggja dóm sinn á þeirri staðreynd, að menn þess-
ir væru með öllu ómóttækilegir fyrir áhrifum menningar-
innar.
Það var áriö 1 í~6T, að sveitarforingi H. R. Pratt var
sendur með flokk hermanna til héraða Indíana til þess að
halda þeim í skefjum. I átta ár dvaldi hann á meðal
þeirra, og hafði á þeim tíma umsjón með herteknum Indi-
önum svo huudruðum skifti, og kann hann að segja margar
frækilegar sögur af viðureign sinni við þá á þeim tima.
Hann kyntist nú skapferli þeirra, og sú sannfæring festi
smátt og smátt rætur hjá lionum, að þeir væru gáfaðir og
mannlundaðir, og einmitt þeim kostum húnir, er þykja
prýða siðaða menn, orðheldni, staðfestu, þreki og sjálfstæði.
Og fengju þeir að verða fyrir áhrifum menningarinnar
mundu hæfileikar þeirra að taka á móti henni engu
minni en bæfileikar annara þjóðflokka.
Eftir Indíanastríðið 1874—75 var honum boðið að fara
til St. Augustin i Elorida með 74 hertekna Indiana; skyldu
þeir sitja þar í nokkurs konar varðhaldi undir umsjón hans
m