Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 76
Veðurspár þeirra gömlu.
Pálsmessa (25. janúar):
Heiðríkt veður og himininn klár
á helga Paulus messu,
mun það boða mjög gott ár;
marka’ eg það af þessu.
En ef þokan Oðins kvon
á þeim degi byrgir
fénaðardauða og fellisvon
forsjáll bóndinn syrgir.
Febrúarmánuður:
Febris ef ei færir fjúk
frost né hörku neina,
kuldi sár þá kemur á búk,
karlmenn þetta reyna.
Ef þig fýsir gefa að gætur
gátum fyrri þjóða,
páskafrostið fölna lætur
Frebruari gróða.
Kyndilmessa (2 febrúar):
Ef i heiði sólin sést
á sjálfa kyndilmessu.
vænta snjóa máttu mest,
maður, upp frá þessu.
Pétursmessa (22. febrúar):
Ef Pétur i feikn og frosti særir,
ferna tiu með sér færir,
vorið vist óvíða nærir,
verða sauðir ei frjóbærir.
Matthiasmessa (24. febrúar, 25. febr. í blaupári = Hlaup
ársmessa):
Mattbías þiðir oftast ís, ‘—
er það greint í versum, —
annars kæla verður vis,
ef vana bregður þessum.
Matthias ef mjúkur er,
máttugt frost þá vorið ber,
vindur, hrið og veðrið hart
verður fram á sumarið bjart.
(62)