Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 54
Sept 7. Pórst bátur i fiskiróðri með 5 mönnum frá Óslandi 1
Skagafirði.
— 9. Byrjaði nýtt blað á ísafirði, »ísfirðingur«; útkoma
óákveðin.
— 11. Frederik 0. Mathiesen, norskur háseti af síldveiða-
skipi (»Nordkyn«), hvarf frá Hellu í Arskógsströnd;
fanst 15. okt. örendur í fjöru þar.
— 17. Unglingspiltur frá Hömrum í Haukadal, Ingólfur
Jónsson, druknaði í ánni þar af hestbaki.
— 28. Brann veitingahns Hórólfs Yigfússonar á Búðum i
Fáskrúðsfirði. Talsverðu bjargað.
— 24. Ólafur Guðmundsson frá Höfða á Vatnsleysustr. hvarf
frá Seyðisfirði og fanst ekki
— 26. Ofsaveður. Druknuðu 2 menn af bát. úr Hrappsey; 1
bjargað. Þilskipið »Blue Bell« (Finnb. Lárussonar i
Garði) strandaði i Leiru og braut i spón; 1 druknaði,
3 bjargað.
— 27. Kristinn Jónsson frá Tjörnum i Eyjaf. (f. 9/i ’76)
viltist i fjárleitum suður um fjöll; fanst lifandi eftir 7
daga (4 okt.) í Eystri-Hrepps afrétti af Eiríki bónda
Ólafssyni í Mástungu. Hann var nokkuð kalinn, en var
fluttnr síðan til Kvikur og lifði af.
I þessum mán. rak á land i Ólafsvík »kúttari«, eign
Björns kaupm. Sigurðssonar í Flatey. Manntjón ekkert.
Hval rak við Núpskötlu á Sléttu.
Okt. 3. Bjargaðopnu skipi í aflandsroki með 10 mönnum 2
milur úti í hafi undan Hvalsnesi við Keykjanes af Han-
sen skipstjóra á »Aldebaran« frá Stafangri.
— 7. Brann gamli bærinn á Sauðafelli i Dölum; fórust all-
miklir munir.
— 15. Ibúðar- og verzlunarhús Gisla Hjálmarssonar kaup-
manns á Nesi í Norðfirði brann til kaldra koia. Litlu
bjargað; manntjón ekkert.
-— 19. Vígður barnaskóli nýr í Rvík.
— 20. Einkaréttur veittur verksmiðjufélagi í Dublin að
gjöra verkfæri til að þurka fisk o. fl.
— 29. Jónas Guðmundsson, járnsmiður á Ölvaldsstöðum J
Borgarhrepp, varð bráðkvaddur á lieimleið frá Borgar-
nesi (um 70 ára?).
(40)