Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Side 41

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Side 41
bogabörnin í mannfélaginu. Margir mannvinir bafa fyr og síöar reynt að hjálpa hinum bágstöddu, bjarga einhverju broti af þeim. Margt er á boðstólnm og hver lofar sina hýru: Góð og réttlát lög. — Betri fræðsla i skólunum. — Loftbetri bústaðir — Hollari matur o. s. frv. — Alt þetta er gott og blessað, hugsuðu þau hjónin, en alt þetta kem- ur, sögðu þau, vilji fólkið á annað borð sinna fagnaðar- boðskapnum um Krist. Og svo finnur W. B. ráðið til þess að hinn hundheiðni ríll, sem aldrei á æfi sinni hafði í kirkju komið og ekki þekti broddstaf frá bókstaf, fengist til að hlusta á kristni- boð hans. Hann tekur sér ræðustól á hinum allra auvirði- legustu skemtistöðumúti við og er jafnhávær með sína vörn og prangararnir i kring um hann. Sá sem hæst getur argað og látið verst fær flesta áheyrendur og áhorfendur. Tilgang- urinn helgar meðalið, bara fólkið komi, þá má nota tæki- færið til að kasta eldibrandi inn í sálirnar. Alt hið óvana- lega háttalag hjálpræðishersins, að eigi sé frekar að kveð- ið, stafar frá þessum uppruna hans, samkepninni við trúða og loddara. Þaðan er kominn trumbuslátturinn og pípna- blástnrinn. Mestn skiftir að láta bera nóg á sér. Þögn má aldrei veiða um herinn, geti foringi ekki unnið vinsemd og hyili blaðanna, þá er talið langtum betra en ekki að fá skammir og hróp. W. B varð furðn mikið ágengt í Lundúnnm. Margir hverjir urðu þeir honum fylgispakastir sem dýpst voru soknir, W. B. tók við öllum, og vakti hjá öllum hrennandi ábuga að frelsa glataðar sálir, öllum fól hann sinn ákveð- inn starfa, konum sem körlum. Austurhluti binnar miklu borgar er aðallega fátæktar og spillingarbælið og við þann hluta Lundúna kendi W. B. trúboð sitt til árslokanna 1877. Það ár vann W. B. að skýrslu uni þessa starfsemi sina, og sá sem skýrsluna færði í letur fyrir hann, hafði komist svo að orði, að starfs- mennirnir væri »sjálfboðalið«. W. B. leit á, og strikaði yfir hálft orðið: »Sjálfboða« erum vér ekki, »vér gjörum það eitt er vér neyðumst til að gjöra«, og hann setti staðinn fyrir orðið: »hjálpræðislið«, eða »Hjálpræðisher- inn« («Salvations army«). Nafnið kemur þá fyrst, og með (27)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.