Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Page 42

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Page 42
nafninu kemur stórum aukið lif og fjör í allar framkvæmd- irnar. Það er svo sem ekki nýtt að hin og þessi trúarfélög hafa að einhverju leyti kent sig við her, og þarf eigi ann- að en minna á riddarafélögin á krossferðunnm. Yt'irmenn ýmsra munkafélaga bera og generalsnafri, þó að visu liggi eigi heint herforusta i þeim heitum. En ekkert trúarfélag hefir sem Hjálpræðisherinn komið herneskjubragnum á alt sitt stjórnarfar og alla háttsemi sína: Bænirnar eru skot- hríðir gegn fylkingum djöfulsins; hendur réttar til himins eru steyttir byssustingir; hólpnar sálir, er flokkinn fylla, eru sigurmerki og herfengur; gjafaféð i löndunum, þar sem herinn starfar, er herkostnaður greiddur af herteknu landi. Starfsmennirnir jafnt konur sem karlar eru dátar eða for- ingjar, sem hækka stig af stigi með öllum þeim heitum sem i her tíðkast. Herreglurnar eru strangar og nákvæmar, snerta eigi síður heilsu og þol likamans en heill sálarinnar. Og eigi mætti siður segja um William Booth en Haraldur konungur harðráði sagði um Gissur Isleifsson, að hann mætti bæði vera víkinga-höíðingi og konungur af sínu skap- lyndi, og væri þess vel fengið. Fáir hershöfðingjar munu hafa haft traustari fylgd sinna manna og verið ein- ráðari um alt smátt og stórt. Ósjálfrátt verður manni jafnan að hera þá saman William Booth og Ignatius Loyola, föður Jesúitanna Jesú- itar eru sterkasta aflið i hinum katólska heimi. I hinum evangelíska heimi liggur við að ætla, að Metódistar séu sterkasta aflið, þrátt fyrir allan þýzkan lærdóm og lúterska ferðakeisarann i Berlín, og þessi kvistur af hinni frjóu grein Metódistanna, Hjálpræðisherinn, fer að verða eitt stórveldið í heiminum. Báðir eru þeir Booth og Loyola framúrskar- andi löggjafar og hershöfðingar, en andinn og tilgangnrinn er ekki hinn sami i liðinu hvoru um sig. Hjá háðum stofn- endunum er brennandi trú og kærleiki til sálnanna, en fra Spáni kemur tiúarofsókn, frá Englandi liknarstarfsemi. Annað mál er það að allar líkur eru til, að her Booths verði eigi jafnlanggæður og her Loyolas. Það gjörir hið nána samhand Jesiiíta við páfavaldið, og i þessum heimi reynist yfirdrotnan og auður haldseigara félagBband en (28)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.