Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Qupperneq 79
Gladstone og- Yiktoría drotning.
Fullíin fjórðung aldar var Gladstone „þjónn hennar
hátignar“, eða átti með öðrum orðum sæti í stjórnarráðaneyt-
inu, og fjórum sinnum og samtals um 12 ár hafði hann þar
forsætið. Arið 1894 lét hann af stjórnarstörfum, þá á 85.
ári, og voru þá liðin rétt (50 ár frá því er hann varð að-
stoðarmaður i ráðaneyti hjá Robert Peel.
Viktoría drotning var fremur fá við Gladstone lengst
af, en þau létu hvort annað njóta sannmælis um vitsmnni
og mannkosti. Það var fyrst er Gladstone tók að gjörast
gamall, að hún bauð honum til sætis, er hann kom til
tals við hana í stjórnarerindum; annars fór mest þeirra á
milli skriflega, og var það alt að kalta titla og togalaust.
Gamla konan var vönd að hirðsiðum og hátign sinni, og
aldrei kvaddi hún Gladstone með handabandi öll þessi
samvinnuár, en hitt var siðurinn að kyssa á hönd drotn-
ingarinnar, þegar hún fól völdin nýjum ráðherra,
Seinustu fundir þeirra voru suður við Miðjarðarhaf,
voru þau bæði þar sér til heilsuhótar, hún 78 ára og hann
88 ára, árinu áður en hann andaðist. Drotning gjörði
honum orð að heimsækja sig, og tók honum hlýlega, og
þá var það í fyrsta sinni að hún kvaddi hann með handa-
bandi, og varð karlinum mjög skrafdrjúgt um það.
Þbrh. Bj.
Nokkur orð.
Um sjóði eru skýrslur í alman. Þv.fl. 1896—1898. En
skýrsla sú sem hér stendur fyrir árin 1897 og 1903. sýnir
þann gleðilega vott, að landsmenn eru á hraðri ferð að
auka féð iil líknar bágstöddum og til eflingar gagnlegum
fyrirtækjum. Flestir sjóðirnir hafa vaxið og nýir bæzt við;
nokkrir sjóðir garnlir og nýir eru þó ótaldir, af því eigi
var hægt að finna hve mikið fé þeir áttu við næstliðin
áramót, — Fáir sjóðir og smáir liafa verið til styrktar
ekkjum og skilduliði druknaðra manna, en nú eru lög
[Framh. bls. 77] (73) [d