Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Síða 85
Auk þessara 39 skipa hafa gengið til þorskveiða nokk-
ur þilskip frá Hafnarfirði og Keflavík. I ár voru þau 12,
sem öfluðu samtals 201,000 fiska eður til jaðnaðar 16,750.
Þessi 51 skip hafa þannig fiskað alls 1 mill. og 12 þús.
fiska, sem óhœtt má reikna að verði 8000 Skpd. af verk-
uðum saltfiski, sem er nálægt ‘/2 mill. kr. virði með yfir
60 kr. verði á skpd. Þetta er mikill fengur á túmum 3
mán., og þó á þeim tíma árs, sem landhóndinn hefur litla
vinnu, er peningar fást strax fyrir. Rúmlega 1000 manns
hafa unnið að þessari veiði, og voru flestir ráðnir upp á
hálfdrætti, hafa þeir þá átt helming aflans eður allt að
250,000 kr. virði. Tvísýnt er að þeir hefðu fengið jafn-
mikið þó þeir hefðu sama tima unnið í góðri gullnámu,
og svo miklð er víst, að kæmi frjett frá Ameríku um jafn
ábatasama atvinnu þar, þá mundi enn þá fleiri -flýa land-
ið og fara þangað.
Ef reiknað er, að 21 maður hafi verið til jafnaðar á
hverju skipi, sem mun næst því rjetta, þá hefur hver
skipverji að meðaltali dregið 1020 fiska, á skip frá Sel-
tjarnarnesi, á skip frá Reykjavik 980 f. og frá Hafnar-
firði tæp 800 fiska. —
Mestur afli á skip var 33,000 fiskar. Þar næst 1 skip
31,500 f., 3 skip nálægt 29,000 f., 12 skip frá 23-28 þús.
hin öll minna.
Til samanburðar get jeg sett hjer skýrslu um afla af
32 frönskum fiskiskipum, sem komu á Reykjavíkurhöfn
um miðjan maí mán. þ. á. og höfðu fiskað við suðurströnd
íslands frá 14. og 28. febrúar til 5. maí.
Öll skipin eru stórar „Skonortur11 frá 100 — 140 smá-
lestir að stærð, ágætlega úthúin. Á þeim voru 813 menn
eða 25'/„ maður að meðaltali á skipi. Þeir fiskuðu alls
828,000 þorska, það er að meðaltali 25,875 f. á skip og
á mann 1018 fiskar. Það skipið sem mest aflaði fjekk
36,000 fiska, 4 skíp að meðaltali 31,500 f., 6 meðaltal
29,000 f., 9 skip meðaltal 26,000 f., 10 skip meðaltal
21,200 f., 2 skip fengu minnst 20,000 f. hvert.
Vorvertíðin (til Jónsmessu) hefur verið i tæpu meðallagi
fyrir skip frá Faxaflóa, þó fjekk aflahæzta skipið 32,000
fiska á vortíðinni og 3 skip yfir 26,000 f. En fiskur sá
er aflast á vorvertíð er ætíð helmingi til >/g minna virði
en sá fiskur, sem aflast á vetrarvertíð. Tr. Gr.
(™)