Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1910, Qupperneq 36
og lét svo mikið að sér kveða, að ílokkurinn gerði
hann innan skamms að formanni sínum.
Eftir nokkur ár hætti hann öllum opinberuffl
störfum um tima og flutti burt úr New-York. Mátti
þá svo að orði kveða, að liann »legðist út« á óbygð-
unum í Norður-Dakota. Par stundaði hann dýra*
veiðar í heilt ár og lifði frumbyggjalííi langt fr»
mannabygðum. Gerði hann pað einkum heilsu sinni
til eflingar. Gat hann sér mikinn veiðimanns-orðstu
og þykir jaínan bera af hverjum manni í þeirri grein,
Degar hann kom aftur heim til New-York, reyndi
hann að ná kosningu sem borgarstjóri borgarinnar,
en tókst það ekki. Kvað það vera eini ósigurinn,
sem Roosevelt heíir beðið um æfina. Hann fékk þ°
annað cmbætti, sem lítið gaf borgarstjóraembættinu
eftir að tign, en var miklu umsvifameira og betra verk-
cfni fyrir hina miklu starfskrafta hans, því að liann
var skipaður yfirmaður allrar lögreglu borgarinnar.
Pegar Roosevelt hafði tekið við þessu embætti,
tók hann til óspiltra málanna að berjast fyrir umbót-
um á ýmsu því, Scm aflaga fór í lögreglumálunum-
Lét hann þar mikið til sín taka, enda varð honum
mikið ágengt. Meðal annars fékk hann þvi íram
komið eftir mikla og harða baráttu, að áfengissölu-
stöðum var lokað á sunnudögum, og áfengissala að
öðru leyti takmörkuð mjög. Þessu einbælti hélt hann
í tvö ár.
Þá varð hann embættismaður í alrikis-stjórnar-
deildinni í New-York. Var þá eins og oftar, að liann
gekk ölullegar fram i embættisrekstri sínum, en menn
voru áður vanir, gekk til dæmis mjög rikt eftir PNl>
að embættismenn gerðu skyldu sína og væru vel undm
stöðu sína búnir. Fékk hann fram komið ýmsum brej
ingum á löggjöf og venjum í þvi skyni. En þráttfjrm
strangleikann varð hann ekki óvinsæll, heldur litu
undirmenn hans til hans með helgum ótta, virtu hann
(26)